Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Qupperneq 68
salsheimild laganna sé byggð á þeirri forsendu að afgreiðsla þessara mála heyri
undir byggingarnefnd, enda er það almenn regla í stjómsýslurétti að stjómvald
getur aðeins framselt það vald sem undir það heyrir lögum samkvæmt, að upp-
fylltum öðmm skilyrðum valdframsals.32 Þegar þetta er haft í huga verður ekki
séð að fullt samræmi sé á milli skipulags- og byggingarlaga og skipulagsreglu-
gerðar að því er þetta atriði varðar sé á annað borð verið að vísa til framkvæmda-
leyfa í skilningi 27. gr. laganna í þessu ákvæði en ekki um að ræða leifar af eldri
framkvæmd þar sem tíðkað var leyfa mönnum að hefja t.d. jarðvegsfram-
kvæmdir í granni þótt ekki lægju fyrir endanleg uppáskrifuð hönnunargögn.
I I. mgr. 6. gr. Evrópusáttmála um sjálfstjórn sveitarfélaga, sbr. auglýsingu
nr. 7/1991, er kveðið svo á að sveitarstjórnir verði að geta ákveðið eigið stjórn-
kerfi til þess að aðlaga það staðbundum þörfum og tryggja árangursríka stjóm-
un, enda brjóti það ekki í bága við almennari ákvæði í lögum. Þegar þetta
ákvæði er haft í huga má draga í efa að það sé skynsamlegt að lög eða skipu-
lagsreglugerð taki af skarið um hvort afgreiðsla á framkvæmdaleyfi á að heyra
undir skipulags- eða byggingamefnd sveitarfélaga, heldur sé það í bestu sam-
ræmi við sjálfstjóm sveitarfélaga að fela hverri sveitarstjóm að ákveða það með
samþykkt sinni um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins, sbr. 10. gr. sveitar-
stjórnarlaga nr. 45/1998.
í anda framangreindra sjónarmiða er mælt svo fyrir í 4. mgr. 40. gr. skipu-
lags- og byggingalaga að sveitarstjóm sé heimilt að víkja frá ákvæðum laganna
um meðferð umsókna um byggingarleyfi og verksvið byggingarfulltrúa í sér-
stakri samþykkt, sbr. 5. og 6. mgr. 37. gr., og að fenginni staðfestingu ráðherra.
Sambærilegt ákvæði er hins vegar ekki til að því er varðar framkvæmdaleyfi.
Þess ber þó að geta að í 2. mgr. greinar 2.6 í skipulagsreglugerð kemur fram að
skipulagsfulltrúi gefi út framkvæmdaleyfi, að fengnu samþykki sveitarstjómar,
og annast eftirlit með því að framkvæmdir séu í samræmi við útgefin leyfi. Þar
er einnig tekið fram að sveitarstjórn geti falið byggingarfulltrúa útgáfu fram-
kvæmdaleyfa.
í heildina má segja að reglur skipulags- og byggingarlaga svo og skipulags-
reglugerðar séu óskýrar, að hluta til ósamræmdar og á köflum óþarflega flóknar
að því er varðar stjórn og skipulag stjórnsýslu sveitarfélaga við útgáfu fram-
kvæmdaleyfa.
8. ALMENNT UM MÁLSMEÐFERÐ STJÓRNVALDA VIÐ
UNDIRBÚNING AÐ ÁKVÖRÐUN UM HVORT VEITT SKULI
FRAMKVÆMDALEYFI
í 1. mgr. greinar 9.2 í skipulagsreglugerð nr. 400/1998 er kveðið svo á að
umsækjandi framkvæmdaleyfis skuli senda skriflega umsókn til hlutaðeigandi
skipulagsnefndar ásamt nauðsynlegum gögnum um fyrirhugaða framkvæmd. I
2. mgr. sömu greinar er tekið fram að til nauðsynlegra gagna teljist uppdráttur
32 Sjá t.d. SUA 1991:17.
252