Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Blaðsíða 72
Samkvæmt 1. mgr. 16. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum er
óheimilt að gefa út leyfi fyrir matsskyldri framkvæmd og starfsemi sem henni
fylgir fyrr en úrskurður um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir. Af ákvæðinu
leiðir að sveitarstjóm getur ekki afgreitt umsókn um framkvæmdaleyfi fyrr en
úrskurður Skipulagsstofnunar liggur fyrir um mat á umhverfisáhrifum. I úr-
skurði úrskurðamefndar skipulags- og byggingarmála frá 31. júlí 1998 í máli nr.
13/1998 var tekið fram að sveitarstjórn þyrfti á hinn bóginn ekki að bíða með
afgreiðslu máls þar til kærufrestur til umhverfisráðuneytisins væri liðinn, enda
frestaði það ekki réttaráhrifum stjórnvaldsákvörðunar að hún væri kæranleg eða
hefði sætt kæru, sbr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Það fellur ekki undir sveitarstjórn að skera úr vafa um hvort framkvæmd sé
háð mati á umhverfisáhrifum. Þær framkvæmdir sem oftast leikur vafi á hvort
háðar séu mati á umhverfisáhrifum eru tilgreindar í 2. viðauka laga nr.
106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr.
106/2000 skulu þessar framkvæmdir háðar mati á umhverfisáhrifum þegar þær
geta haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif vegna umfangs, eðlis eða
staðsetningar. Framkvæmdaraðila ber að tilkynna Skipulagsstofnun ef fyrir-
hugað er að ráðast í framkvæmdir sem taldar eru upp í 2. viðauka laga nr.
106/2000, sbr. 2. mgr. 6. gr. laganna. Áður en Skipulagsstofnun ræður máli til
lykta skal stofnunin leita álits leyfishafa, í þessu tilviki sveitarstjómar, fram-
kvæmdaraðila og til annarra eftir eðli máls hverju sinni. Skipulagsstofnun skal
tilkynna innan fjögurra vikna hvort framkvæmdin er háð mati samkvæmt lög-
unum. Stofnunin skal gera framkvæmdaraðila grein fyrir niðurstöðu sinni og
kynna hana almenningi.
Ef framkvæmdaraðili hefur ekki tilkynnt Skipulagsstofnun um fyrirhugaða
framkvæmd þegar hann sækir um framkvæmdaleyfi til sveitarstjómar, og
framkvæmdin fellur undir 2. viðauka laga nr. 106/2000, verður að telja eðli-
legast að sveitarstjóm leiðbeini framkvæmdaraðila á grundvelli 7. gr. stjórn-
sýslulaga um að bera málið undir Skipulagsstofnun skv. 6. gr. laga nr. 106/2000
og tilkynni aðila að afgreiðslu málsins verði frestað þar lil niðurstaða Skipu-
lagsstofnunar liggur fyrir, enda er óheimilt að gefa út leyfi fyrir framkvæmd
skv. 6. gr. nema fyrir liggi úrskurður um mat á umhverfisáhrifum eða ákvörðun
um að framkvæmd sé ekki matsskyld, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 106/2000.
Þráist framkvæmdaraðili við að bera málið undir Skipulagsstofnun virðist
sveitarstjórnin sjálf geta haft frumkvæði að því að bera málið undir Skipu-
lagsstofnun á gmndvelli 3. mgr. 6. gr. laganna, þar sem hver sem vill getur borið
slíkt mál undir stofnunina. Ákvörðun Skipulagsstofnunar um það hvort fram-
kvæmd er háð mati á umhverfisáhrifum er kæranleg til umhverfisráðherra, sbr.
4. mgr. 6. gr. laga nr. 106/2000. Kærufrestur er fjórar vikur frá því niðurstaða
stofnunarinnar var kynnt hlutaðeigandi eða almenningi. Þráist umsækjandi við
að láta fara fram mat á umhverfisáhrifum, þar sem það er skylt, getur sveitar-
stjóm einnig vísað máli um umsókn um framkvæmdaleyfi frá, enda hafi máls-
aðila verið nægilega leiðbeint áður, sbr. 7. gr. stjómsýslulaga.
256