Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Page 80
Úrskurðarnefndinni er heimilt að kveðja sér til fulltingis sérfróða aðila við
úrskurð einstakra mála, sbr. 3. mgr. 8. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Nefndinni er skylt að kveða upp úrskurð svo fljótt sem auðið er og eigi síðar
en tveimur mánuðum eftir að henni berst mál í hendur. Sé mál viðamikið og
fyrirsjáanlegt að afgreiðsla taki lengri tíma skal nefndin tilkynna hlutaðeigandi
það og tiltaka afgreiðslufrest sem aldrei skal þó vera lengri en þrír mánuðir, sbr.
4. mgr. 8. gr. skipulags- og byggingarlaga, sbr. og 3. mgr. 9. gr. stjómsýslulaga
nr. 37/1993.
Um málsmeðferð að öðru leyti fer eftir stjórnsýslulögum, sbr. 6. mgr. 8. gr.
skipulags- og byggingarlaga. Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. stjómsýslulaga getur
nefndin ákveðið að mál skuli munnlega flutt ef það er sérstaklega vandasamt og
ætla má að það upplýsist betur með þeim hætti.
I 27. gr. skipulags- og byggingarlaga er sveitarstjórn ekki falin sjálfstjórn í
þeim skilningi að hún geti sett sérstakar efnisreglur um framkvæmdaleyfi sem
gilda skuli í sveitarfélaginu. Eins og vikið var að í kafla 9 eru skilyrði fyrir
útgáfu framkvæmdaleyfis að fullu lögbundin. Af þeim sökum verður að telja að
allir efnisþættir stjórnvaldsákvörðunar sveitarstjómar um framkvæmdaleyfi
geti því komið til endurskoðunar hjá úrskurðamefnd skipulags- og bygg-
ingarmála. Bæði sá þáttur hvort framkvæmd sé háð framkvæmdaleyfi sam-
kvæmt skýmm fyrirmælum 2. mgr. 27. gr. laganna og einnig hvort uppfyllt séu
skilyrði til útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 8. gr. laganna.
Úrskurðir nefndarinnar eru fullnaðarúrskurðir á stjórnsýslustigi og verður
ekki skotið til umhverfisráðherra, sbr. 3. mgr. 8. gr. skipulags- og byggingar-
laga.®
HEIMILDIR:
Alþingistíðindi.
Andersen, P.: Dansk Forvaltningsret. Kaupmannahöfn 1965.
Garde, J.: „Saglige krav“, í ritinu Forvaltningsret. Alniindelige emner. 3. útg.
Kaupmannahöfn 1997.
Páll Hreinsson: „Alitsumleitan". Afmælisrit Gaukur Jörundsson sextugur
24. september 1994. Reykjavík 1994.
Páll Hreinsson: „Lagaáskilnaðarregla atvinnufrelsisákvæðis stjórnarskrárinnar“.
Líndæla. Sigurður Líndal sjötugur 2. júlí 2001. Reykjavík 2001.
Páll Hreinsson: Stjórnsýslulögin - skýringarrit. Reykjavík 1994.
Skýrslur umboðsmanns Alþingis.
Starfsskilyrði stjórnvalda. Reykjavík 1999.
264