Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Blaðsíða 82
1. INNGANGUR
Sumarið 2003 var lokið lögfræðiúttekt á því lagaumhverfi sem nær til
rafrœns eftirlits atvinnurekanda með starfsmönnum sínum, en nánar tiltekið var
um að ræða skoðun á eftirfarandi aðferðum við eftirlitið:
1. Afkastamælingum og eftir atvikum gerð frammistöðumats í framhaldi
af þeim
2. Eftirliti með tölvupósti starfsmanna
3. Eftirliti með intemetnotkun starfsmanna
4. Hlustun á símtöl starfsmanna
5. Skráningu símnúmera sem starfsmaður hringir í
6. Notkun eftirlitsmyndavéla
Framangreind lögfræðiúttekt er hluti af stærra rannsóknarverkefni sem ber
yfirskriftina Ahrif upplýsingatœkni á vinnuumhverfi og persónuvernd en um er
að ræða samstarfsverkefni Vinnueftirlits ríkisins, Verslunarmannafélags Reykja-
víkur, Landlæknisembættisins, Persónuvemdar og Rafiðnaðarsambands Islands.
Grein þessi er að mestu byggð á áðumefndri lögfræðiúttekt en hefur þó að
nokkru verið löguð að nýrri réttarframkvæmd.1
2. ALMENNT UM VIÐFANGSEFNIÐ
Við umfjöllun um rafrænt eftirlit á vinnustöðum fléttast reglur vinnuréttar
saman við reglur er lúta að friðhelgi einkalífs. Þannig er annars vegar um að
ræða reglur er varða rétt einstaklings til þess að hafa upplýsingar um einkahagi
sína „í friði“ og má þar nefna 71. gr. stjórnarskrár íslenska lýðveldisins, 8. gr.
Mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs, lög nr. 77/2000 um per-
sónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (hér eftir skammst. pvl., einnig nefnd
persónuvemdarlög) og ákvæði XXV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Hins vegar er um að ræða reglur vinnuréttar sem auk þess að kveða á um að
atvinnurekanda beri að sýna starfsmanni sínum tilhlýðilega virðingu og sann-
gimi, viðurkenna rétt hans til þess að hafa visst eftirlit með starfsmönnum sín-
um. Þar er þó gerður greinarmunur á því hvort atvinnurekandi hefur eftirlit með
starfsmönnum sínum í þeim tilgangi að tryggja öryggi og festu á vinnustaðnum
eða hvort tilgangurinn er sá að auka afköst starfsmanna. Hvað hinu síðamefnda
viðkemur hefur verið litið svo á að atvinnurekandi liafi mun takmarkaðri heim-
ildir til þess að ákveða slíkt eftirlit einhliða.2
Lög nr. 77/2000 með áorðnum breytingum eru með ýtarlegri réttarheimild-
um hvað snertir það efni sem hér er til skoðunar. 17. gr. laganna er kveðið mjög
1 Úttektina er í heild sinni að finna á heimasíðu Vinnueftirlits ríkisins, www.ver.is. Elsa Þorkels-
dóttir lögfræðingur kom að samningu lögfræðilegu úttektarinnar og eru henni færðar bestu þakkir
fyrir það.
2 Ruth Nielsen: Persondata og arbejdsgiverens ledelsesret. Julebog. 2000, bls. 286.
266