Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Síða 83

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Síða 83
skýrt á um að málefnalegar ástæður verði að vera fyrir vinnslu persónu- upplýsinga og segja má að krafan um málefnalegan tilgang sé rrkjandi í allri umfjöllun um rafrænt eftirlit atvinnurekanda með starfsmönnum sínum. Sé háttsemi ekki talin málefnaleg á sviði vinnuréttar myndi hún ekki teljast það heldur á sviði persónuvemdar. Hins vegar er ekki víst að háttsemi sem teldist málefnaleg á sviði vinnuréttar yrði einnig talin það á sviði persónuvemdarréttar. Telja má lfklegt að mat á grundvelli laga nr. 77/2000 á því hvort háttsemi sé málefnaleg eða ekki geti verið strangara heldur en slíkt mat innan vinnuréttar- ins.3 3. LÖG NR. 77/2000 UM PERSÓNUVERND OG MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA MEÐ ÁORÐNUM BREYTINGUM Persónuvemdarlögin gilda um sérhverja rafræna vinnslu persónuupplýsinga og einnig um handvirka vinnslu persónuupplýsinga sem eiga að verða hluti af skrá. Lögin innleiða í íslenskan rétt tilskipun Evrópusambandsins 95/46/EB um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun þeirra. 3.1 Skilgreiningar I 2. gr. laganna eru hugtök og orð skýrð. Þar kemur fram að persónuupp- lýsingar séu sérhverjar persónugreinanlegar upplýsingar, þ.e. upplýsingar sem beint eða óbeint má rekja til tiltekins einstaklings. Hugtakið vinnsla er skýrt sem sérhver aðgerð eða röð aðgerða þar sem unnið er með persónuupplýsingar, hvort sem vinnslan er rafræn eða handvirk. I greinargerð kemur fram að hugtakið sé vítt og taki til hvers konar meðferðar á persónuupplýsingum, óháð þeirri aðferð sem notuð er og óháð því hvort gagna- grunnur sé miðlægur eða dreifður. Með vinnslu er t.d. átt við söfnun og skrán- ingu og undir það fellur m.a. flokkun, varðveisla, breyting, leit, miðlun, sam- tenging eða hver sú aðferð sem nota má til að gera upplýsingar tiltækar. Sama á við um lokun og eyðingu upplýsinga.4 Hugtakið rafræn vöktun er skilgreint sem vöktun sem sé viðvarandi eða endurtekin reglulega og feli í sér eftirlit með einstaklingum með fjarstýrðum eða sjálfvirkum búnaði og fari fram á almannafæri eða á svæði sem takmark- aður hópur fólks fer um að jafnaði. Hugtakið tekur til: a. vöktunar sem leiðir, á að leiða eða getur leitt til vinnslu persónuupplýsinga, og b. sjónvarpsvöktunar sem fer fram með notkun sjónvarpsmyndavéla, vefmyndavéla eða annars sam- svarandi búnaðar, án þess að fram fari söfnun myndefnis eða aðrar aðgerðir sem jafngilda vinnslu persónuupplýsinga. 3 Peter Blume og Jens Kristiansen: Databeskyttelse pá arbejdsmarkedet. Kaupmannahöfn 2002, bls. 42. 4 http://www.althingi.is/altext/125/s/0399.html - Alþt. A-deild 1999-2000, þskj. 399, bls. 2714. 267
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.