Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Page 85

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Page 85
3.3 Vinnsluheimildir I 7. gr. persónuverndarlaganna kemur m.a. fram að við meðferð persónu- upplýsinga skuli þess gætt að upplýsingarnar séu unnar með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og að persónuupplýsingar séu fengnar í yfirlýstum, skýrum og málefnalegum tilgangi og ekki unnar frekar í öðrum ósamrýmanlegum tilgangi. í greinargerð segir að við mat á þessu verði m.a. að skoða hvort markmiðið sé í samræmi við eðli þeirrar starfsemi sem ábyrgðar- aðili hefur með höndum. Þannig megi ekki vinna með persónuupplýsingar í tilgangi sem er ósamrýmanlegur þeim tilgangi sem var með söfnun þeirra.7 Þá segir einnig í greininni að persónuupplýsingar skuli ekki vera umfram það sem nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar og að persónuupplýsingar eigi að varðveita í því formi að ekki sé unnt að bera kennsl á skráða aðila lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu. í 8. gr. laganna er fjallað um heimildir til vinnslu almennra persónuupp- lýsinga, en í 9. grein laganna er kveðið á um heimildir til vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga. 1. mgr. 8. gr. hljóðar svo: Vinnsla persónuupplýsinga er því aðeins heimil að einhverjir eftirfarandi þátta séu fyrir hendi: 1. hinn skráði hafi ótvírætt samþykkt vinnsluna eða veitt samþykki skv. 7. tölul. 2. gr., 2. vinnslan sé nauðsynleg til að efna samning sem hinn skráði er aðili að éða til að gera ráðstafanir að beiðni hins skráða áður en samningur er gerður, 3. vinnslan sé nauðsynleg til að fullnægja lagaskyldu sem hvílir á ábyrgðaraðila, 4. vinnslan sé nauðsynleg til að vemda brýna hagsmuni hins skráða, 5. vinnslan sé nauðsynleg vegna verks sem unnið er í þágu almannahagsmuna, 6. vinnslan sé nauðsynleg við beitingu opinbers valds sem ábyrgðaraðili, eða þriðji maður sem upplýsingum er miðlað til, fer með, 7. vinnslan sé nauðsynleg til að ábyrgðaraðili, eða þriðji maður eða aðilar sem upplýs- ingum er miðlað til, geti gætt lögmætra hagsmuna nema grundvallarréttindi og frelsi hins skráða sem vemda ber samkvæmt lögum vegi þyngra. 1. mgr. 9. gr. hljóðar svo: Vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga er óheimil nema uppfyllt sé eitthvert af skilyrðum 1. mgr. 8. gr. og enn fremur eitthvert af eftirfarandi skilyrðum: 1. hinn skráði samþykki vinnsluna, 2. sérstök heimild standi til vinnslunnar samkvæmt öðmm lögum, 3. ábyrgðaraðila beri skylda til vinnslunnar samkvæmt samningi aðila vinnumarkaðar- ins, 4. vinnslan sé nauðsynleg til að verja verulega hagsmuni hins skráða eða annars aðila sem ekki er sjálfur fær um að gefa samþykki sitt skv. 1. tölul., 269
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.