Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Síða 89

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Síða 89
úrskurði stjórnar Persónuvemdar frá 7. október 2003 vegna Mjólkursamsölu Reykjavíkur, var m.a. vísað til þess að skilyrðin um „sérstaka þörf‘ vegna „eðlis“ þeirrar háttsemi sem fram fór væru uppfyllt, sjá nánari umfjöllun um málin hér á eftir. Áður hefur verið skýrður munurinn á rafrænni vöktun sem leiðir til, á að leiða eða getur leitt til vinnslu, og á rafrænni vöktun sem telst sjónvarpsvöktun. Öll vinnsla persónuupplýsinga þarf að fullnægja einhverju þeirra skilyrða sem kveðið er á um í 1. mgr. 8. gr. pvl., en þar er kveðið á um almennar reglur fyrir vinnslu persónuupplýsinga, og einnig eftir atvikum ákvæði 1. eða 2. mgr. 9. gr. sé um viðkvæmar persónuupplýsingar að ræða. Hvað varðar notkun eftirlits- myndavéla á vinnustöðum má segja að einkum komi til álita heimildin í 7. tl. 8. gr. sem kveður á um að vinnsla persónuupplýsinga geti verið heimil sé hún nauðsynleg til þess að ábyrgðaraðili, þ.e. atvinnurekandi, geti gætt lögmætra hagsmuna sinna nema grundvallarréttindi og frelsi hins skráða, þ.e. starfs- manns, vegi þyngra lögum samkvæmt. Það er ábyrgðaraðila, hér atvinnurek- anda, að tryggja að sú rafræna vöktun og vinnsla persónuupplýsinga sem fram fer á vinnustað hans sé lögmæt. Algengast er að notkun eftirlitsmyndavéla eigi sér þann tilgang að tryggja öryggi þeirra sem um staðinn fara og að vernda eigur, t.d. með því að koma í veg fyrir þjófnað eða skemmdir á eignum. Upplýsingar um hvort maður hafi verið grunaður, kærður, ákærður eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað teljast til viðkvæmra persónuupplýsinga, sbr. b-lið 8. tl. 2. gr. persónuverndarlaganna. Telja verður því að almennt verði við vinnslu þess mynd- og hljóðefnis sem til verður við notkun eftirlitsmyndavéla, miðað við að um vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga sé að ræða. Persónuverndarlögunum var breytt vorið 2002 með lögum nr. 81/2002. Var tilgangur þeirra breytinga m.a. að skýra frekar hvernig fara skuli með hljóð- og myndefni sem til verður við rafræna vöktun en fram að því hafði heimild til vinnslu slíkra persónuupplýsinga byggst á almennum ákvæðum laganna um vinnslu. Samkvæmt 2. mgr. 9. gr. persónuverndarlaganna, eins og henni var breytt með ofangreindum lögum, er heimilt í tengslum við framkvæmd rafrænnar vöktunar að safna efni sem verður til við vöktunina, svo sem hljóð- og myndefni, með viðkvœmum persónuupplýsingum sé vöktunin nauðsynleg og fari fram í öryggis- og eignavörsluskyni. Þröngar vinnsluheimildir eru í ákvæðinu, en þar er sérstaklega kveðið á um það í 2. tl.: að það efni sem til verður við vöktunina verði ekki afhent öðrum eða unnið frekar nema með samþykki þess sem upptaka er af eða samkvæmt ákvörðun Persónu- verndar; heimilt er þó að afhenda lögreglu efni með upplýsingum um slys eða refsi- verðan verknað en þá skal þess gætt að eyða öllum öðram eintökum af efninu. 273
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.