Ægir - 01.03.1996, Qupperneq 9
trillur. Kvóti i núverandi mynd er mein-
semd og hlýtur að hverfa innan
skamms. Það á að aðskilja línu- og
handfæraveiðar í eitt skipti fyrir öll. Það
á að leyfa handafærabátum ca. 100 sjó-
ferðir á ári og línubátum helmingi færri
svipaö og er í Færeyjum. Afli í þessum
sjóferðum verði sem allra mestur og
ekki dregið af honum með neinum
hætti, því að þessar veiðar em vistvænar
og sjálfsagðar og ekki sambærilegar við
neinar aðrar."
Þessu verður að breyta
Eðvald Eðvaldsson er fæddur 1937 og
byrjaði til sjós 1951 og hefur aldrei
stundað aðra vinnu. Hann tók próf frá
Stýrimannaskólanum 1962 og var stýri-
maður og skipstjóri samfleytt til 1990
þegar hann, eins og margir gamlir sjó-
hundar, keypti sér 4 tonna trillu og hef-
ur veitt á hana að jafnaði 20 tonn á ári
sem hann segir að sé algjört lágmark til
þess að vinna fyrir sér.
„Sumir telja það reyndar of lítið og
því er löppunum kippt undan þessum
rekstri með skerðingu niður í ca. 13
tonn. Að óbreyttu gengur þessi útgerð
auðvitað ekki.
Ég trúi ekki að þessu verði ekki breytt
og tel mig hafa orðið varan við aukinn
skilning stjórnvalda.
Ef 20 tonna afli er lágmark til að hafa
atvinnu af þá gætu 60 tonn veriö há-
mark og þeir sem verða að fá meira en
60 tonn á trillu eða eru neyddir til að fá
minna en 20 tonn verða þá að leita til
Páls Péturssonar eftir aðstoð." □
Hraðferjan Kattegat
Ferjan Kattegat sem tekin var í
notkun sl. sumar og siglir milli Jót-
lands og Sjálands er meðal þeirra
hraðskreiðari. Ferjan er 95 metra
löng og rúmar 600 farþega og 160
bíla. Hún siglir jafnan með 32 mílna
hraða en getur aukið hraðann í 38
mílur ef þörf krefur. Til þessa þarf
fjórar vélar sem samtals framleiða
32 þúsund hestöfl. Fleiri ferjur með
slíka afkastagetu eru í smíðum þar
sem reynslan af þessari hefur verið
góð.
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur
skríður 16-16,5 sjómílur á ferð sinni
milli lands og Eyja og er 2,45 klst.
að sigla 40 sjómílur. Kattegat myndi
fara leiðina á 1,15 klst.
CSkipsrevyen, desember 1995)
„Tilkynningaskylda íslenskra skipa getur auðveldlega tekið við
nauðsynlegum upplýsingum um nokkrar trillur og Fiskistofa fær
nú þegar allar umbeðnar upplýsingar frá þeirra stofnun."
dieselkerfi • vökvakerfi
varahlutaþjónusta
viðgerðarþjónusta
spissar
vökvakerfi
BRÆÐURNIR
DJ ORMSSON HF
LÁGMÚLA 9, SÍMI 553 8820, FAX 568 8807
olíudælur
olíuverk
© BOSCH
ÆGIR 9