Ægir - 01.03.1996, Blaðsíða 11
þess að gera skipinu kleift að taka
þátt í loðnufrystingu í Hafnarfirði en
erlend skip mega ekki vinna afla
innan lögsögunnar. Heinaste er
stærsta fiskiskip sem hefur verið
skráð á íslandi en hann er í eigu
Sjólaskipa í Hafnarfirði.
Stærsta ioðnufarmi sem kom-
ið hefur í íslenska höfn var
landað á Vopnafirði þegar færeyska
loðnuskipið Tróndur í Götu kom
inn með 2.326 tonn af loðnu.
Tróndur er jafnframt djúpristasta
skip sem hefur komið að bryggju á
Vopnafirði en allt gekk vel.
Skipstjóra- og stýrimannafé-
lagið Sindri á Austurlandi
hótar að segja skilið við Farmanna-
og fiskimannasamband íslands. Fé-
lagsfundur á Eskifirði samþykkir ein-
róma að fara skuli fram atkvæða-
greiðsla um málið meðal félags-
manna.
Jón Páll Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Norðurtangans
á ísafirði lætur af störfum eftir 27 ára
starf.
Loðnuveiði gengur vel og
þegar frystingu lýkur er ljóst
að meira hefur verið fryst en nokkru
sinni áður. Tæp 600 þúsund tonn
eru eftir af loðnukvóta og því sýnt
að ekki tekst að veiða hann allan
þótt gæftir yrðu góðar til vertíðar-
loka.
PJR Pétur Stefánsson útgerðar-
■■■ maður og eigandi Péturs
Jónssonar RE gengur frá samningi
um smíði á nýjum rækjutogara í
Aukra í Noregi. Þetta verður 64
metra langt skip með 4.500 hestafla
vél og verður afhent í september
1997. Núverandi Pétur Jónsson hef-
ur aöeins verið eitt og hálft ár á veiö-
um og aflað vel.
Áætlanir eru uppi um að
breyta Sigurði VE svo hann
geti veitt loðnu í flottroll á næstu
vertíð en þau fáu skip sem það gátu
höfðu forskot á önnur í vetur. Sigurð-
ur er eitt stærsta nótaskip íslendinga.
MAÐUR MÁNAÐARIIMS
Maður mánaðarins er Pétur Stefánsson skipstjóri og útgerðarmaður á Pétri
Jónssyni RE en nýlega varð heyrinkunnugt að samið hefði verið um smíði á nýjum
rækjutogara í stað núverandi Péturs Jónssonar sem kom nýsmíðaður til landsins fyrir
einu og hálfu ári.
Nýja skipið verður smíðað í Aukra skipasmíða-
stöðinni í Noregi eins og hitt og teiknað hjá Skips-
teknisk a/s þar í landi. Það verður útbúið til rækjuveiða
og frystingar, tæplega 64 metra langt eða 4.5 metrum
lengra en hið eldra með 4.500 hestafla aðalvél sem er
500 tonna aflaukning. Frystigetan verður 80 tonn á
sólarhring en er 50 tonn í dag.
Síðasta ár fiskaði Pétur Jónsson RE fyrir 2.300 af
rækju fyrir 540 milljónir króna og var þó einn mánuð
fré veiðum í ársklössun.
Pétur Stefánsson fæddist á Húsavík 14. október
1943 sonur Stefáns Péturssonar sjómanns og
útgerðarmanns þar og í Sandgerði. Hann fór 15 ára til
sjós hjá föðursínum á Pétri Jónssyni ÞH. Hann útskrifaðist úr Stýrimannaskólanum 1962
og var stýrimaður og skipstjóri á Náttfara ÞH. 1967 keypti Pétur Náttfara og þar hófst
hans útgerðarferill, en jafnframt var hann skipstjóri. Næsta skip var Eldey KE sem Pétur
keypti 1972 ásamt Júlíusi bróður sínum og skírði Pétur Jónsson í höfuðið á afa sínum.
Þetta skip heitir Sighvatur Bjarnason VE í dag.
Pétur er enn skipstjóri á Pétri Jónssyni RE og tekur annan hvem túr á móti Bjarna
Sveinssyni. Hinn túrinn stýrir Pétur útgerðinni í landi og segir að það gangi vel og dugi
alveg.
ORÐ | HITA LEIKSINS
„Úthlutun aukinna aflaheimilda sem byggði á veiðileyfagjaldi eða opinni sölu veiði-
réttar væri tilræði við útgerð á Vestfjörðum." Gunnlaugur M. Sigmundsson
þingmaður týsir afstöðu sinni í Vestfirska fréttabtaðinu.
„ Það er vægt til orða tekið að ég sé því andvígur. Þeim verður það aldrei fyrirgefið."
Arnfinnur Arnfinnsson borgari á Akureryri segir Degi álit sitt á fýrirhugaðri sölu
á hlut bæjarins í ÚA.
„Það er kunnara en frá þurfi að segja að allur veiddur afli kemur ekki að landi. “ At-
vinnumálanefnd í Vestmannaeyjum skrifar útgerðarmönnum þar.
„Stærstu kvótaeigendurnir eru lögfræðingar og aðrir sem eiga peninga því þetta er
eins sú besta fjárfesting sem hægt er að gera í dag." Jóhannes Jóhannesson
fiskverkandi í samtali við Mbl. um kvótakerfið meðal annars.
„I dag þegar ungu mennirnir hérna eru að leita sér að kærustu, þá er nýjasta aðferð-
in þessi: Á pabbi þinn kvóta?" Sami Jóhannes Jóhannesson lýsir rómantík á
Suðurnesjum fyrir Mbl.
ÆGIR 1 1