Ægir - 01.03.1996, Blaðsíða 13
einn sólarhring. Mælingamabur var um
borð og reynslan var góö en síðan hafa
umsóknir um undanþágu frá lokun ekki
borið árangur," sagði Jón Einar.
Veiöarfæriö velur fiskinn
Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar er
umboðsaðili fyrir SORT-X smáfiskaskilj-
ur á íslandi. Jón Einar sagöist í samtali
við Ægi binda miklar vonir við notkun
slíkra skilja sem hann sagði að opnuðu
ýmsa möguleika á því ab veija fisk til
veiða.
Jón Einar sagði að smáfiskaskiljan
væri framleidd í tveimur stærðum. Skilja
af stærri gerð kostar 650 þúsund fyrir
utan flutningskostnaö og er það, að
sögn Jóns, sama verð og út af verkstæði í
Noregi.
Norðmaðurinn Roger Larsen fann
upp skiljuna en fyrirtækið SELFI A/S í
Tromsö hefur einkaleyfi á framleiösl-
unni. Sótt hefur verið um einkaleyfi í
fleiri löndum, þar á meðal íslandi.
Strangt gæðaeftirlit er með framleiðsl-
unni í Noregi en SELFI A/S hefur veitt
tveimur öbrum fyrirtækjum þar leyfi til
að smíba SORT-X. Upprunavottorð og
raðnúmer fylgir hverri skilju. Norska
strandgæslan getur krafist slíks vottorðs
frá skipstjóra en þessar kröfur auðvelda
allt eftirlit með notkun skiljunnar og er
gæslan afar ánægð með þetta fyrirkomu-
lag.
Jón sagði að fyrst um sinn væru skilj-
urnar fluttar inn tilbúnar en ákveðið
væri að þær yrbu smíðaðar á staðnum
þegar eftirspurn ykist.
Tilraunir Norbmanna með smáfiska-
skiljuna voru mjög umfangsmiklar og
stóðu á árunum 1989 til 1992. Tilraun-
irnar voru gerðar við raunverulegar að-
stæður, þ.e. togarar á veiðum voru tekn-
ir á leigu og skiljan þannig prófuð við
allar aðstæður á ólíkum skipum og ólík-
um hafsvæðum. 55 mm bil var haft
milli rimla og í ljós kom að 95% af und-
irmálsfiski slapp úr trollinu en netpokar
söfnuðu því sem slapp og neðansjávar-
myndavélar voru einnig notaðar til ab
fylgjast meb framvindunni. Mismun-
andi bil milli rimla getur þurft eftir teg-
undum en auðvelt er ab breyta því úti á
sjó eins og skiljan hefur verið hönnuð.
Smáfiskaskiljan komin inn á dekk á Bjarti NK sumariöl995. Jón Hlífar Aðalsteinsson
stýrimaður fylgist með.
Fiskurinn sem sleppur lifir vel
Lokaverkefni Jóns Einars við há-
skólann í Tromsö fjallaöi um lífslíkur
fisks sem sleppur úr trolli bæði við
hefðbundnar aðstæbur og úr skilju.
Fisknum var safnað í búr sem síðan
var sleppt frá trollinu og fylgst með
því næstu vikur með neðansjávar-
myndavél og sýnatökum. Niðurstaban
varð sú að nær allur fiskur lifði vel af
en smærri fiskur virtist þola enn bet-
ur að sleppa úr skiljunni en venjuleg-
um poka.
Fiskitrollið hefur verið lítib eba ekki
breytt frá því það kom fram á sjónar-
sviðið fyrir um 100 árum og þeir
möguleikar sem opnast með tilkomu
smáfiskaskiljunnar til þess að stjórna
stærðardreifingu aflans eru óneitan-
lega byltingarkenndir. □
Hásetar á Bjarti slá stroffu á trollið við tilraunaveiðar með smáfiskaskilju.
ÆGIR 13