Ægir - 01.03.1996, Qupperneq 17
Vertíðarbátar fóru verst
út úr kerfinu
„Það er alveg ljóst ab þessir hefð-
bundnu vertíðarbátar, eins og þessi,
hafa farið langverst út úr kvótakerfinu.
Við höfum mátt þola langmesta skerð-
ingu.
Ef kvótakerfið hefði verib klárað eins
og átti ab gera þá væm engin vandamál
nú. Það vom skilin eftir alls konar göt í
kerfinu sem bæði togarar og krókabátar
gátu nýtt sér og nú er verið að basla við
ab loka þegar það er orðið of seint. Það
átti ekki að leyfa sumum að valsa laus-
um í kerfinu og alþingismönnum að út-
hluta smápörtum til einhverra gæba-
dýra.
Margir þessir karlar sem eru með
krókabáta í dag eru búnir ab selja kvót-
ann sinn tvisvar ef ekki þrisvar. Þeir eru
sá hópur sem mest hafa hagnast á
kvótakerfinu og nú er veriö að setja á þá
kvóta enn einu sinni og þá geta þeir selt
hann enn einu sinni. Það eru til króka-
bátar sem hafa meira en 100 tonna
kvóta. Vib erum búnir að vera í þessu í
30 ár og eigum tæplega 170 tonn. Það
þætti mörgum krókakarli lítið."
Mestu áróðursmenn í heimi
„Arthúr Bogason og Örn Pálsson eru
mestu áróbursmenn í heimi og þess hafa
smábátaeigendur notið. Við bátamenn
eigum engan málsvara, engin samtök og
engan sem tekur svari okkar og berst fyr-
ir okkar hagsmunum."
En heitir ekki málsvari ykkar Kristján
Ragnarsson formaður Landsambands ís-
lenskra útgerðarmanna? Þú hlýtur ab
vera félagi í LÍÚ?
„Samtökin hafa gleymt bátaflotanum
því þar ráða togaramenn Þeir hugsa bara
um togarana. LÍÚ eru ekki málsvari báta-
flotans. Þab er ekkert hlustað á okkur.
Togaramenn hafa þar öll völd og allar
umræður um aukin áhrif bátamanna
hafa verið kæfðar í fæöingu. Síðast fyrir
fáum ámm var einum bátamanni bætt í
stjórnina til að friða menn en það hefur
lítið breyst."
Aðalsteinn segir að vertíðarbátunum
fari stöbugt fækkandi og segir sárgræti-
legt að horfa upp á nýlega báta úrelta og
selda úr landi fyrri spottprís.
„Menn hafa verið ab gefa þetta nánast
hérna til nágrannalandanna. Sjávarborg-
in er ágætt dæmi, fínn bátur sem var úr-
eltur og mér skilst að hún sé til sölu úti í
Svíþjóð núna og íslendingar vilji kaupa."
Aðalsteinn segir að Hringur gæti af-
kastað að minnsta kosti tvöfalt meiri
veiðum en nú eru leyfðar og segist því
ekkert ginnkeyptur fyrir því ab skipta um
bát því þess þurfi ekki.
„Ætli hann dugi okkur ekki til loka,
þessi."
Misræmi í vigtun
Aðalsteinn segir okkur frá dæmi um
sérstæða mismunun milli landshluta þeg-
ar bátaflotinn er annars vegar. Mismun-
un þessi felst í því hvenær aflinn er
vigtaður.
„Vib látum vigta aflann hérna á hafn-
arvoginni og fáum svo að senda ísprufu
þegar búið að tæma körin í Hafnarfirði
og ísinn er yfirleitt um 7%. Þetta á vib
um útileguveiðar. Þeir sem aka með afl-
ann héban af bryggjunni t.d. norður á
Siglufjörð vigta hann auðvitað hér og fá
svo að senda ísprufu eftir viku að norðan
eftir að fiskurinn er búinn að skakast alla
þessa leið og vatnið sigið úr. Þeirra hlut-
fall er yfirleitt í kringum 16-17%. Ég hef
margoft bent á þessa hluti en það er eins
og enginn vilja hlusta. Sjómannafélögin,
LÍÚ, ráðuneytib, það vill enginn hlusta á
neitt.
Þetta þýðir, mibað vib 100 tonn, að ég
fæ 7 tonn í uppbót fyrir ísinn en útgerb-
armaðurinn fyrir norðan 16 eba 17 tonn
og þetta finnst mér ekki sanngjarnt. Þetta
getur vel verið löglegt en þetta er sannar-
lega siðlaust."
Burt með allar undanþágur
En hvernig finnst þá Aðalsteini að
hægt væri að létta undir með hinum
hefbbundnu vertíðarbátum sem hann
segir að skapi langmesta atvinnu í landi?
„Það á að taka fyrir allar undanþágur í
kerfinu, eins og aukningu á krókaleyfi,
nýja báta og línutvöföldun og slíkt, og
úthluta til allra. Fyrir nokkmm ámm þeg-
ar loönuveiði brást var loðnubátum kom-
ið til hjálpar með því ab úthluta þeim
þorskkvóta og rækju sem fiestir þeirra
eiga enn. Nú er góðæri hjá loðnuskipum
„Efkvótakerfið heföi verið
klárað eins og átti að gera
þá vœru engin vandamál
nú. Það voru skilin eftir
alls konargöt í kerfmu
sem bæði togarar og
krókabátar gátu nýtt sér
og nú er verið að basla við
að loka þegar það er orðið
ofseint. Það átti ekki að
leyfa sumum að valsa
lausum í kerfinu og al-
þingismönnum að úthluta
smápörtum til einhverra
gœðadýra."
og þeir komast ekki yfir að veiða alla þá
loðnu og síld sem þeir mega veiða. Mér
finnst að það eigi að taka aftur af þeim
þennan þorsk- og rækjukvóta og skila
honum aftur mebal annars til okkar sem
þurftum að láta hann af hendi á sínum
tíma.
Helmingurinn af þessum vertíðarbát-
um væri daubur ef ekki væri fyrir fyrir-
tæki sem útvega þeim kvóta, 2-3 tonn, á
móti hverju tonni sem báturinn leggur
til."
Ertu þá á móti kvótakerfinu?
„Ég veit ekki hvað á að koma í stað-
inn. Það segjast allir vera óánægðir með
kvótann en enginn segir hvað á ab koma
í staöinn. Það er margt sem má lagfæra
en þab er ekki þar með sagt að kerfið sé
alslæmt."
Ætti að lögbinda hámarksverð
á kvóta
Abalsteinn segir að Hringur GK leigi
kvóta á um 75 krónur kílóið um þessar
ægir 17