Ægir - 01.03.1996, Qupperneq 27
breytilegt að venju. Kynþroskahlutfall
5-7 ára ýsu er hærra árið 1995 en 1994.
Lengdardreifingar
Lengdardreifingar sýna meðalfjölda
fiska á togmílu fyrir hvern sentimetra
sem fiskurinn dreifist á. Lengdardreif-
ingarnar eru sýndar á tveimur svæðum,
annarsvegar á norðursvæði, sem nær
frá Bjargtöngum norður um að Eystra-
horni, og hinsvegar á suðursvæði, sem
nær yfir suður- og vesturhluta land-
grunnsins.
Þorskur
Á árunum 1985 og 1986 bar talsvert
á þorski sem var á lengdarbilinu undir
20 cm og 20-30 cm á norðursvæði, þ.e.
eins og tveggja ára þorski af árgöngun-
um 1983 og 1984 (8. mynd). Árin
1987-1993 bar mjög lítið á eins árs
þorski, þ.e. fiski sem er um 10-15 cm
að lengd. Árið 1994 var eins árs þorskur
hins vegar aftur vel merkjanlegur í
lengdardreifngunni. Þeim árgangi má
svo fylgja eftir í stofnmælingu 1995 en
þá kom fram toppur í lengdardreifing-
unni á 20-30 cm bilinu. Á suðursvæði
einkennist lengdardreifing aflans af því
að tiltölulega lítið er af smáfiski á þeirri
slóð. Flest árin er mest af þorski á bil-
inu 60-80 cm en árin 1985-1987 feng-
ust nokkrir smærri þorskar einnig á
þessu svæði. Engin nýliðun var á suð-
ursvæði árin 1987-1992. Aðeins örlaði
á smáfiski 1993 og árið 1994 sker
lengdardreifingin á þessu svæði sig úr
að því leyti að þá varð vart við eins árs
þorsk í einhverjum mæli. I lengdar-
dreifingunni 1995 er toppur tveggja ára
fisks en rýrari en við hefði mátti búast.
Þegar lengdardreifingin er skoðuð fyrir
allt tímabilið er athyglisvert hve fjöldi
fiska bæði á norður- og suðursvæði hef-
ur minnkað á seinni árum miðað við
fyrri ár rannsóknatímans.
Ýsa
Árin 1985 og 1986 einkenndist
lengdardreifing ýsu á norðursvæði af
tveimur toppum, annarsvegar rétt und-
ir 20 cm og hinsvegar við 30 cm lengd
(9. mynd). Hér var fyrst og fremst um
árgangana frá 1984 og 1985 að ræða
4. mynd. Meðalþyngd (grömm) þorsks eftir 5. mynd. Meðalþyngd (grömm) þorsks eftir
aldri á suðursvœði 1985-1995. aldri á norðursvceði 1985-1995.
sem reyndust mjög áberandi í ýsuaflan-
um og lengdardreifingu ýsu næstu árin.
Árin 1990 og 1991 má sjá hliöstæða
þróun þegar árgangarnir frá 1989 og
1990 komu inn í lengdardreifingu
stofnsins. Þessum árgöngum, og þá sér-
staklega árganginum frá 1990, er hægt
að fylgja eftir í lengdardreifingunni
fram til ársins 1994 á norðursvæði og
til 1995 á suðursvæði. Myndin á suður-
svæði er í stórum dráttum áþekk þeirri
á norðursvæði enda ná bæði svæðin að
hluta til yfir aðalútbreiðslusvæði
ýsunnar við landið.
6. mynd. Meðalþyngd (grömm) ýsu eftir 7. mynd. Meðalþyngd (grömm) ýsu eftir
aldri á suðursvœði 1985-1995. aldri á norðursvœði 1985-1995.
ÆGIR 27