Ægir - 01.03.1996, Qupperneq 31
REYTINGUR
123 bjórtunnur
Áhöfnin á breska bátnum Crimmond
taldi sig hafa komist í feitt á dögunum
þegar þeir sigldu fram á breiðu af
áltunnum fljótandi á sjónum. Þetta
reyndust vera bjórkútar kyrfilega merkt-
ir Guinness í bak og fyrir. Áhöfnin linnti
ekki látum fyrren 123 kútarvoru komn-
ir um borð en talsvert dró úr gleði þeirra
þegar í Ijós kom að kútarnir voru allir
tómir.
(Fishing News, febrúar 1996)
Austfirskir togarar veiða minna
I nýlegri togaraskýrslu LIU fyrir árið
1995 er afli ísfisktogara hvern úthalds-
dag borinn saman milli ára og eftir
landshlutum. Sá samanburður leiðir í
Ijós að afli austfirskra ísfisktogara
minnkaði á úthaldsdag úr 9,3 tonnum í
8,35 eða um 10,2%. Aflinn minnkaði
um 3,51 % hjá vestfirskum ískfisktogur-
um en jókst um 3,73% hjá sunnlensk-
um og um 4,99% hjá norðlenskum.
(Útvegurinn, 1. tbl. 1996)
Nýr slökkvibátur
Sjávarútvegsráðuneytið í Hong Kong
hefur tekið í notkun nýjan slökkvibát
sem mun annast eldvarnir og slökkvi-
störf við strendur landsins. Skipið er
hannað í Kanada og smíðað í Singapore
og ber nafnið Fireboat 2. Það er 32
metra langt og 6,5 metrar á breidd og
skríður 15 mílur. Fimm manna áhöfn
slökkviliðsmanna hefur í vopnabúri sínu
5.500 lítra af froðu og 4.000 lítra af
vatni. Tvær 716 kw Caterpillar vélar
knýja skipið og búnaðinn sem er meðal
annars þrjár dælur sem afkasta 1800
lítrum á mínútu.
(Workboat Review, 1. tbl. 1996)
Verður Brent Spar gerður
að fiskabúri?
Olíuborpallurinn risavaxni Brent Spar
var mikið í heimsfréttunum í lok síðasta
árs þegar olíufélagið Shell hugðist
sökkva honum í Norðursjó en vegna
ákafra mótmæla, bæði frá ríkisstjórnum
ýmissa landa og umhverfisverndarsam-
tökum, var hætt við það og pallurinn
dreginn upp að ströndum Noregs.
Nú eru uppi hugmyndir um að koma
borpallinum á endanlegan stað úti fyrir
Ballstad við Lófót og fá honum nýtt
hlutverk. Bjartsýnismenn sjá fyrir sér að
sá hluti pallsins sem er neðansjávar
verði að skjóli og griðastað fyrir lúðu og
þorskeldi en íbúðirnar í efri hlutanum
verði að fræðslu- og þjálfunarmiðstöð
fyrir slökkviliðsmenn og björgunarsveitir
sem geti æft sig að bregðast við elds-
voðum og olíuslysum af ýmsu tagi við
náttúrlegar aðstæður.
Brent Spar yrði í sérstæðum félags-
skap á þessum slóðum því við Rohol-
men úti fyrir Ballstad er skipakirkju-
garður þar sem sökkt hefur verið 36
úreltum fiskiskipum. Þegar burðarvirki
Brent Spar bætist í hópinn, annað hvort
í heilu lagi eða skorið í hluta, þá er búið
að mynda sannkallaða borg af fiska-
húsum á þessum slóðum.
Það voru einmitt Norðmenn sem í
fyrra gerðu fyrstu tilraunina á norður-
slóðum til þess að sökkva með skipu-
legum hætti steinsteyptum griðastöðum
fyrir fiska, svokölluðum fiskahúsum.
Það kemur fram í norska blaðinu
Fiskaren að hugmyndin hafi fæðst
þegar menn heyrðu af vangaveltum
íslendinga um að fá borpallinn keyptan
fyrir slikk og nota hann sem hótel og
bækistöðvar fiskeldis.
(Fiskaren, mars 1996)
Nýtt slökkviefni í stað halongass
Fyrirtæki í efnaiðnaði keppast nú við
að finna efni eða efnablöndur sem nota
megi í stað halongass við slökkvistörf
en halongas hefur verið bannað víða um
heim vegna ósóneyðandi áhrifa þess.
Halon var og er gífurlega virkt slökkvi-
efni því það útilokar allt súrefni frá eldin-
um á svipstundu. Nú hefur norskt fyrir-
tæki sett á markaðinn nýja tegund af
froðu, HotFoam, sem er fullyrt af gefi
haloni lítið eftir. Kostir þessarar froðu er
að hún er vatnsblönduð og því segir
framleiðandinn að hún sé hvorki skað-
leg fólki né umhverfi og henti vel í aflok-
uðum rýmum eins og vélarúmum.
(Workboat Review, 1. tbl. 1996)
Norskum fiski smyglað
til Tælands
Talið er að töluverðu af fiski frá
Noregi sé smyglað inn á markað í Tæ-
landi frá Sjanghæ. Þetta finnst mönnum
fýsilegt vegna hárra innflutningstolla í
Tælandi sem nema allt að 60% á fisk-
afurðum. Markaðurinn íTælandi erstór
því þar er rík hefð fyrir neyslu sjávar-
fangs af fjölbreyttu tagi. Á síðasta ári
fluttu Norðmenn opinberlega út fisk til
Tælands fyrir rúmar 30 milljónir norskra
króna en fluttu inn fiskafurðir frá Tæ-
landi fyrir rúmar 20 milljónir.
(Fiskaren. febrúar 1996)
ís hindrar fiskveiðar í Skagerak
Fiskimenn sem sækja í Skagerak
hafa flæmst frá veiðum vegna óvenju
mikilla ísalaga á þeim slóðum og hafþök
af ís liggja yfir fengsælum fiskislóðum.
Miklir kuldar á þessum slóðum eru
orsökin og segja elstu menn í Ytra-
Oslóarfirði að þeir muni ekki annað eins
ófremdarástand síðan 1942, en þá lá ís
yfir fiskislóðum fram á vor.
(Fiskaren, febrúar 1996)
Óhollt að vinna á vöktum
Rannsóknir hafa ítrekað leitt í Ijós að
vaktavinnufólk sefur að jafnaði 7 stund-
um skemur í hverri viku en dagvinnu-
fólk.
Vaktavinnufólk kvartar um þreytu og
svefnleysi og er sísyfjað því oft reynist
erfitt að sofa á daginn og því meiri
þreyta sem safnast upp, því erfiðara
verður að ná fullri hvíld.
Vaktavinna veldur streitu í sam-
skiptum maka og fjölskyldna og rann-
sóknir sýna aukna tíðni áfengissýki og
svefnlyfjanotkunar hjá vaktavinnufólki
auk meltingartruflana, magasárs og
aukinnar hættu á hjarta- og æðasjúk-
dómum.
(Fréttir i Vestmannaeyjum, febrúar 1996)
ÆGIR 31