Ægir - 01.03.1996, Side 42
brúttótonn. Aðalvél er Volvo Penta, 380
hestöfl, og báturinn er að sjálfsögðu
með 5 tonna togvindum frá Ósey.
Ósey velti á síðasta ári um 150 millj-
ónum en 100 árið áður og sýnist munu
auka umsvif sín nokkuð á nýbyrjuðu
ári en verkefni til september eru ígildi
ársveltu síðasta árs að umfangi.
Starfsmenn Óseyjar eru nú 16-17
en þrjú önnur fyrirtæki eru yfirleitt í
Eftir breytingar var eiginþyngd hans
um 150 tonn en hámarksburðargeta
brautarinnar mun vera um 200
þungatonn að sögn Hallgríms.
Nú er verið að ljúka umfangsmiklum
breytingum á Farsæl GK frá Grindavík
hjá Ósey. Báturinn verður lengdur um 4
metra og hækkaður um 0,5 metra. Ný
brú og nýr hvalbakur, ljósavélar, ný tog-
spil og krani.
Sncetindur ÁR eftir breytingar hjá Ósey.
samstarfi við Ósey svo segja má að
starfsmannafjöldi sé jafnan um 30. Að
sögn Hallgríms hefur samstarf þetta
varab lengi án þess að um formlegt
samstarf sé að ræða. Þetta eru aðallega
Orri hf., Bjarmi hf., Jóhann og Ólafur
hf., Rafboði Garðabæ sem eru
rafvirkjar, Skipa- og véltækni i Keflavík
sem sér um hönnun og Brim hf. sem
eru trésmiðir.
Nokkrum bátum hefur verið breytt
verulega hjá Ósey á undanförnu ári og
er Snætindur ÁR ágætt dæmi um verk-
efni af því tagi en Snætindur var lengdur
í miðju um 2,5 metra og um 0,5 metra
að aftan. Hvalbakurinn var lengdur og
nýr toggálgi settur á. Snætindur er 102
brl. eftir breytingarnar en var 88 brl. fyr-
ir þær. Hann er að mörgu leyti dæmi-
gerður bátur í þessum stærðarflokki,
smíðaður 1961 í Austur-Þýskalandi.
Auknar kröfur um bætta aflameðferð
kalla á breytingar
„Það hefur ekki verið nein endurnýj-
un að ráði síðustu ár," sagði Hallgrím-
ur. „Því miður hefur verið algengara að
menn úreldi nýlega og góða báta sem
ekki hefur verið rekstrargmndvöllur fyr-
ir.
Það er stöðug og jöfn þörf fyrir við-
gerðir og endurbætur á þessum flota til
þess að færa hann til nútímans. Það er
verið að setja ný og betri spil um borð
og betri búnab.
Auknar kröfur um betri meðferð afl-
ans kalla á breytingar. Nú er ekki lengur
nógu gott að setja fiskinn í stíur og
landa í málum á bílpall. Nú gerir mark-
aðurinn kröfur um að allur fiskur sé ís-
aður í körum og margar þær breytingar
sem við erum að gera eru til þess að
bátarnir geti sett fiskinn í kör, haft kæl-
1913 Hringur SH 277
Mesta lengd úr 11,28 m í 13,02 m
Dýptaraukning 0,25 m
Brúttórúmlestir úr 10,48 í 12,7
Brúttótonn úr 13,76 í 18,46
Rúmtala úr 58,5 m3 í 67,1 m3
1926 Garpur SH 266
Mesta lengd úr 9,53 m í 11,02 m
Miðjulenging 1,90 m
Brúttórúmlestir úr 8,12 í 9,74
Brúttótonn úr 8,64 í 10,86
Rúmtala úr 33,5 m3 í 41,1 m3
1968 Arnar KE 260
Mesta lengd úr 16,20 m í 19,50 m
Miðjulenging 3,30 m
Brúttórúmlestir úr 47,29 í 59,67
Brúttótonn úr 48,79 í 59
Rúmtala úr 238,1 m3 í 299,5 m3
2076 Keilir AK 27
Mesta lengd úr 10,34 m í 11,99 m
Miðjulenging 1,50 m
Brúttórúmlestir úr 9,76 í 9,49
Brúttótonn úr 9,70 í 13,03
Rúmtala úr 39,4 m3 í 45,8 m3
Minni breytingar á
þilfarsskipum
226 Beitir NK 123
Mesta lengd úr 65,98 m í 66,24 m
Lengdaraukning 0,26 m
Brúttórúmlestir úr 742,02 í 755,98
Brúttótonn úr 927 í 1.031
399 Kári GK 146
Mesta lengd úr 19,75 m í 19,40 m
Lengdarminnkun 0,35 m
1037 Dagfari GK 70
Mesta lengd úr 40,10 m í 38,98 m
Lengdarminnkun 1,12 m
1134 Steinunn SH 167
Mesta lengd úr 31,10 m í 32,85 m
Lengdaraukning 1,75 m
Brúttórúmlestir úr 135,28 í 144,18
Brúttótonn úr 204 í 224
42 ÆGIR