Ægir - 01.03.1996, Qupperneq 54
7218 Ása MB 18
Lenging 1,23 m
Brúttórúmlestir úr 4,45 í 6,29
Brúttótonn úr 3,89 í 5,32
7233 Elli póstur RE 433
Lenging 1,45 m
Brúttórúmlestir úr 3,20 í 4,05
Brúttótonn úr 2,63 í 3,78
7305 Sæfinnur SH 337
Lenging 1,32 m
Brúttórúmlestir úr 4,45 í 5,29
Brúttótonn úr 3,93 í 5,48
7311 Sigurvík SH 117
Lenging 0,58 m
Brúttórúmlestir úr 5,93 í 6,30
Brúttótonn úr 5,01 í 5,75
9002 Bjarni ÍS 97
Lenging 1,06 m
Brúttórúmlestir úr 2,10 í 2,39
Brúttótonn úr 2,05 í 2,90
9048 Ljóri RE 84
Lenging 2,00 m
Brúttórúmlestir úr 3,03 í 4,50
Brúttótonn úr 2,55 í 4,61
Nýlegar vélar í
opnum bátum
6075 Árni SU 58
Ný vél: Bukh, 26 kw. 1994
Áöur: Bukh, 26 kw. 1980
6134 Akurey RE 97
Ný vél: Yanmar, 26 kw. 1995
Áöur: Peugeot, 30 kw. 1980
6187 Stella ÁR 445
Ný vél: Volvo Penta, 136 kw. 1994
Áður: Volvo Penta, 114 kw. 1981
6214 Skussi ÞH 314
Ný vél: Starpower, 140 kw. 1994
Áður: B.M.W., 100 kw. 1985
6261 Snarpur HF 141
Ný vél: Volvo Penta, 119 kw. 1995
Áður: Volvo Penta, 114 kw. 1981
6340 Rún KÓ 7
Ný vél: Perkins, 84 kw. 1994
Áður: Perkins, 53 kw. 1982 ?
Hákarlalýsi
Samkvæmt því sem lesa má í íslenskum sjávarháttum hafa
hákarlaveiðar verið stundaðar hér við land allt frá söguöld.
Hákarlalýsi var verðmæt afurð og nýting þess var margvísleg.
Sjálfrunnið hákarlalýsi þótti auka hreysti og heilbrigöi og
drukku margir það daglega. Sumir töldu hákarlalýsi ágætt viö
ýmsum kvillum og í gömlu lækningakveri er það sagt gott
við brjóstmæði og því betra sem
það sé eldra. Þannig sé sjö ára
lýsi ágætt, fimm ára allgott
og þriggja ára brúkanlegt.
Hákarlalýsi soðið saman viö
hvalambur þótti afar gott viö
heymæði. Lítið var um að þaö væri
notað útvortis en gott þótti að bera
hákarlslýsi blandað nauts- eða hrútsgalli á bólgið
eða sárt hold. Þess voru og dæmi að konur bæru
hákarlslýsi í hár sér til þess aö auka vöxt þess.
Sagt var að Þorleifur læknir og sjáandi í Bjarnarhöfn gæfi
eldishestum hákarlalýsi en þaö var einnig talið ágætt fóður
fyrir sauðfé. Lungnasótt í sauðfé var talin læknast með því
að saxa pressutóbak saman við hákarlslýsi og hella ofan í
kindina þremur spónblöðum eða minna.
Þegar lokið var við að bræöa hákarlalýsi var grúturinn eða
hamsarnir sem eftir urðu blandaðir mykju og bornir á tún
eða þeir voru þurrkaðir vel og látnir saman við mosa og
notaðir sem eldiviður sem var kallaður grútarmosi.
í dag eru í sumum löndum hömlur á sölu hákarlalýsis
vegna þess hve það inniheldur mikið A-
vítamín en ofskömmtun þess er
óholl. Hér á landi fæst
hákarlalýsi í litlum lýsisperlum og trúin
á lækningamátt þess og hollustu umfram
annað lýsi lifir enn góðu lífi.
54 ÆGIR