Ægir - 01.09.1996, Qupperneq 33
Fram til þessa hefur Ulstein afgreitt
þrjú skip til landsins, sem byggð voru
innan heildarlausnar Ulstein. Það eru
Pétur Jónsson, Helga og Hákon. Héðinn
hefur aðeins verið umboðsaðili fyrir-
tækjasamsteypunnar Ulstein. Þar er
bakland okkar traustast vegna áratuga
samstarfs okkar við norska framleið-
endur spilkerfa.
Miklar framfarir við framleiðslu
fiskimjöls
Að undanförnu hafa orðið miklar
framfarir í meðferð fiskmjöls hér á
landi. í þeim framförum eiga starfs-
menn í smiðju Héðins mikinn þátt.
Merki þeirra sjást ljóslega í hinum
miklu mjölgeymum sem risið hafa á Fá-
skrúðsfirði og Eskifirði. Sýna geymarnir
sjálfir þó aðeins hluta verksins, því þeir
eru aðeins ysta lag fullkomins mjöl-
blöndunar- og birgðageymslukerfis.
Þessi kerfi hefur Héðinn hannað og
byggt í samvinnu við samstarfsaðila
okkar í Noregi.
Við nýtum okkur reynslu Norð-
manna, sem notað hafa svona kerfi
lengi. Byggt er á einfaldri grunnhug-
mynd en útfærsla hennar er mjög flók-
in og ekki á færi hvers sem er. Við að-
lögum eldri reynslu að íslenskum að-
stæðum og á þann hátt er komist hjá
ýmsum „fæðingarhríðum".
Notkun nýju mjölblöndunar- og
birgðageymanna hefur verulega vinnu-
hagræðingu í för með sér. Ekki þarf
lengur að sekkja mjölið og sparast með
því bæði tími og fé. Komist er hjá
beinni rýrnun á mjöli og sekkjum. Ekk-
ert skemmist í pökkun né flutningi. Allt
ferlið er nú í sjálfvirku lokuðu kerfi.
Oryggi viö framleiðslu eykst
Hinn höfuðkosturinn við að taka
upp hið nýja kerfi er að öryggi um gæði
mjölsins eykst verulega. Mun minni lík-
ur eru á að nokkrar bakteríur eða sýklar
komist í það en áður. Með nýja kerfinu
næst að tryggja að gæði mjölsins séu
jöfn. Með því að hringkeyra dagsfram-
leiðsluna í geymunum næst þetta og
auk þess má stjórna efnasamsetningu
°g eiginleikum mjölsins með því að
blanda saman hinum ýmsu gerðum
þess og fá þá útkomu sem verið er að
sækjst eftir. Allt gerist þetta innan
geymakerfisins. Þannig má jafnvel gera
verðlítið mjöl verðmikið og jafnframt
halda sömu gæðum í framleiðslunni,
þegar til lengri tíma er litið. Margir
mjölkaupendur Ieggja einmitt meira
upp úr jöfnum gæðum og öruggri af-
greiðslu en lægra verði.
í seinni tíð leggja menn æ meiri
áherslu á framleiðslu hágæðamjöls. Til
þess að ná miklum gæðum þarf full-
komnari tækjabúnað í verksmiðjunum.
Blöndunar- og birgðageymslukerfið er
einn mikilvægasti hluti þess tæknibún-
aðar, sem þarf til að reka hagkvæma
gæðamjölsframleiðslu.
þar um að ræða 350 tonna fiskmjöls-
verksmiðju með tækjabúnaði af nýjustu
og fullkomnustu gerð, sem ætlað er til
framleiðslu á gæðafiskimjöli. Héðinn er
aðalverktaki og sér um hönnun, bygg-
ingu verksmiðjuhúss, uppsetningu
tækja ásamt raf- og stjórnbúnaði. Öll
aðaltæki verða frá Stord International.
Báðum þessum fullkomnu og glæsi-
legu fiskimjölsverksmiðjum, í Örfirisey
og á Akranesi, verður skilað tilbúnum til
keyrslu í janúar næstkomandi eða fyrir
næstu loðnuvertíð. Þær eru gott dæmi
um árangursríkt samstarf og samvinnu
Héðins Smiðju og Stord International.
Kostir við að framleiða fiskmjöl í
L
I
II
Fiskmjölsverk-
smiðja Haraldar
Böðvarssonar.
Nýbygging
þurrkarasalar í
forgrunni, tveir
affjórum
mjölgeymum
risnir í baksýn.
Nýjar og stærri mjölverksmiðjur
Um þessar mundir standa yfir fram-
kvæmdir við nýbyggingu fiskmjölsverk-
smiðju Faxamjöls í Örfirisey og endur-
byggingu og stækkun verksmiðju Har-
alds Böðvarssonar hf. á Akranesi sem
hæst. Báðar þessar miklu framkvæmdir
eru á vegum Héðins Smiðju hf. en öll
aðaltæki verða frá Stord International.
Á Akranesi er byggt nýtt verksmiðju-
hús og settur upp afar fullkominn
tækjabúnaður svo sem loftþurrkarar, ný
eimingartæki, ný pressa og sjóðari o.fl.
Einnig er verið að byggja fjóra 1000
tonna mjölgeyma og tvo 1500 tonna
hráefnisgeyma.
Verksmiðja Faxamjöls rís við hlið nú-
verandi beinamjölsverksmiðju. Verður
hinum nýju og fullkomnu verk-
smiðjum
* Blöndun mjölsins einföld og mögu-
leikar margir.
* Einsleitt mjöl í miklu magni.
* Gæði aukin og stöðugri.
* Betri nýting á mjöli.
* Notkun mjölsekkja leggst af.
* Rýrnun nánast engin.
* Hætta á bakteríusýkingum nánast
engin.
* Geymsla einfaldari og öruggari.
* Verðmeiri vara.
* Samningsstaða sterkari við sölu.
* Útskipun einfaldari og skjótvirkari.
* Vinnusparnaður mikill á öllum þrep-
um frá blöndun til útskipunar. □
ægir 33