Ægir - 01.09.1996, Page 72
Bárður Hafsteinsson í Skipatækni
22% nýsköpunarskattur af
völdum úreltra úreldingarreglna
„Mér finnst ótrúlegt hve fast stjórnvöld halda við núverandi úrelding-
arreglur sem standa endurnýjun flotans fyrir þrifum. Ég get ekki séð
skynsemina í þessu og það er undarlegt hve margir útgerðarmenn eru
hlynntir þessu," segir Bárður Hafsteinsson forstjóri í Skipatækni í
samtali við Ægi. „Ég get ekki séð að t.d. loðnuflotinn sé nógu stór mið-
að við núverandi aðstæður."
Afnám eða breyting núverandi úreld-
ingarreglna er baráttumál Bárðar en
hann telur að þær komi í veg fyrir eðli-
lega endurnýjun og stefni öryggi loðnu-
flotans í hættu.
„Við getum tekið sem dæmi útgerð-
armann sem á nótaskip eins og Örninn,
sem nú er í breytingum í Póllandi. Fyrir
breytingu mælist skipið 1308 rúmmetr-
ar og lestar rúmlega 750 tonn. Ef út-
gerðarmaðurinn vildi byggja nýtt skip
sem ber nákvæmlega jafnmikinn afla í
sjókælitönkum og vill jafnframt að
skipið uppfylli nútímakröfur varðandi
öryggi skipsins og aðbúnað áhafnar, þá
verður nýja skipið með 1.000 rúmmetra
lestar og ber 750 tonn í tönkum. Það
myndi mælast 2.891 rúmmetri eða
1.583 rúmmetrum stærra en gamla
skipið. Þennan mismun í rúmmetrum
þyrfti útgerðarmaðurinn að kaupa fyrir
ca. 90 þúsund krónur rúmmetrann og
úrelda. Þetta myndi því kosta 142 millj-
ónir til viðbótar við smíðaverð skipsins
sem gæti verið um 650 milljónir
þannig að þetta er nýsköpunarskattur
upp á 22%, bara fyrir að endurnýja skip
með nákvæmlega sömu burðargetu."
Þessar reglur gilda einnig um breyt-
ingar á yngri skipum en skip sem eru
smíðuð fyrir 1978 eru undanþegin því
að kaupa úreldingu samkvæmt reglum
sem ráðuneytið setur.
„Hólmaborgin, sem verður lengd um
14 metra í haust, er smíðuð 1978 og er
því réttum megin við mörkin en ef hún
væri 10 árum yngri þyrfti útgerðin að
kaupa úreldingu fyrir tugi milljóna til
þess að framkvæma þessa breytingu."
Bárður segir að auk þess að virka sem
nýsköpunarskattur komi þetta engum
til góða nema þeim sem vilja hætta út-
gerð og geta þannig selt gömul skip á
uppsprengdu verði.
Bárður Hafsteinsson forstjóri í Skipatækni.
„Þetta er brýnt mál og löngu tíma-
bært að stjórnvöld geri eitthvað í þess-
um efnum. Þetta er óskiljanleg afstaða
því með núverandi nótaflota er ekki
tryggt að leyfilegur afli náist úr uppsjáv-
arstofnum og ekki hægt að svara kröf-
um tímans um vöndun hráefnis."
Skipatækni, sem Bárður er í forsvari
fyrir, er rúmlega 20 ára gamalt fyrirtæki
sem, eins og nafnið bendir til, teiknar
og hannar skip, bæði nýsmíðar og
breytingar. Margt aflaskipið hefur orðið
til á teikniborðunum í Skipatækni í ár-
anna rás og of langt að telja þau öll upp
en síðasta nýsmíðin var Guðbjörg ÍS
sem hiklaust er talið með fullkomnustu
fiskiskipum í heiminum í dag.
Helstu viðfangsefni sem Skipatækni
er að vinna að um þessar mundir er
hönnun og umsjón mjög mikilla breyt-
inga sem verið er að gera á Erni KE og
verið að undirbúa samskonar breytingar
á Bergi VE. Þessar breytingar fela í sér þá
nýbreytni að skipt er um skrokk að
framan og byggt utan á afturskipið til
þess að auka stöðugleikann. í næsta
áfanga hjá Erninum verður svo skipt
um allt ofandekks, brú og vistarverur og
þá verður fátt eftir upprunalegt í þessu
gamla skipi. Svo stórar breytingar hafa
ekki verið gerðar áður.
„Þetta hefur þróast svona stig af stigi
en við höfðum aldrei hannað svona
breytingar þegar við tókum Örninn að
okkur."
Nýsmíðar eru stöðugt til umræðu og
Skipatækni er að vinna forvinnu vegna
smíða á nýju fjölveiðiskip fyrir Sam-
herja á Akureyri. Smíðasamningar hafa
ekki verið gerðir enn en ljóst að hér
verður um að ræða skip sem er sam-
bærilegt við það besta sem gerist á þessu
sviði við Norður-Atlantshafið og mun
geta borið rúmlega 2.00 tonn af
bræðslufiski. Skipatækni vann fyrr á ár-
inu að undirbúningi nýsmíðar fyrir Tog-
araútgerð ísafjarðar en það verkefni
liggur niðri eins og er. Ýmsar nýsmíða-
hugmyndir eru einnig í gangi fyrir er-
lenda aðila. □
72 ÆGIR