Ægir - 01.09.1996, Síða 74
Bátasmiðja Guðmundar:
Nýr og betri Sómi
Bátasmiðja Guðmundar er nærri 20 ára gamalt fyrirtæki, stærsti fram-
leiðandi plastbáta á íslandi, og hefur framleitt rúmlega 300 Sómabáta.
Vinsælasta gerð þeirra var lengst Sómi 800 en nú er kominn nýr Sómi
800 og 860 sem er byggður á grunni gamla bátsins en er mun burðar-
meiri og stöðugri en forveri hans. Auk þess er meira dekkpláss og auk-
ið plássi í húsi.
„Öflugasti báturinn í þessum stærðar-
flokki er Sómi 860 með 360 hestafla Vol-
vo Penta, V-gír og Pílu skrúfubúnaði.
Báturinn skríður rúmar 30 sjómílur tóm-
ur en með 3 tonn af fiski í lest nær hann
25 sjómílna hraða," sagði Óskar Guð-
mundsson framkvæmdastjóri Báta-
smiðju Guðmundar í samtali við Ægi.
„Sómabátarnir eru þekktir fyrir ótrú-
lega sjóhæfni, mikinn hraða og hag-
kvæmni í rekstri. Sómi hefur haft um
50% markaðshlutdeild innanlands und-
anfarin áratug en nú erum við farnir að
framleiða bát sem margir kalla Ofur-
sóma.
Þetta er öflugasti hraðfiskibátur sem
smíðaður hefur verið á íslandi. Hér er
um að ræða 30 tonna bát sem Óskar
kallar krókabát framtíðarinnar. Ofursóm-
inn nær 30 mílna hraða tómur en 25
nn'lum með 10 tonn af fiski. Þetta er
stærsti plastbátur sem smíðaður hefur
verið á íslandi, 15 metrar á lengd og 4,5
metrar á breidd, knúinn áfram af tveim-
ur rúmlega 500 hestafla vélum."
Hinn mikli ganghraði næst með því
að báturinn lyftir sér og liggur að mestu
ofan á sjónum eins og hefðbundinn
hraðbátur. Að sögn Óskars er eldsneyt-
iseyðslan í lágmarki eða svipuð og á sæ-
rýmisbát af áþekkri stærð og er þá verið
að miða við eyðslu pr/sjómílu.
„Sjómenn tala yfirleitt um vega-
lengdir og eyðslu í „tímum" og segja að
það séu t.d. 2 tímar en það eru kannski
12-15 sjómílur sem tekur aðeins 30
mínútur á Sóma 1500. Hraðinn er aðal-
atriðið þar sem tíminn er peningar. Þar
sem hefðbundinn krókabátur eyðir 4-5
tímum í einum róðri á siglingu þá
myndi Sómi 1500 nota 1-2 tíma. Þar
sparast 3-4 tímar sem má nota annað
hvort á miðunum eða heima hjá fjöl-
skyldunni eða fara á mið sem aðrir
komast ekki á vegna fjarlægðar. Einnig
má benda á þann möguleika að sigla
lengra með aflann þar sem betra verð
fæst."
Báturinn er hannaður til vistvænna
veiða, s.s. línu eða handfæraveiða, en
hægt er að stunda netaveiðar, rækjuveið-
ar eða veiðar með snurvoð og jafnvel
gildruveiði á honum. Dekkplássið er 40
fermetrar og lestin rúmar 15 fiskikör 660
lítra að stærð eða 21 rúmmetri. íbúðir
eru fyrir fjögurra manna áhöfn.
Sómi 1500 er byggður með aðferð
sem er kölluð „samlokuaðferð" sem
byggir á léttum kjarna með trefjaplasti
báðum megin. Með þessu næst mikill
styrkur og mikili léttleiki en einfalt er að
breyta bátnum í framleiðslu og t.d. að
smíða hann fyrir einhverja tiltekna úr-
eldingu, t.d. 14 eða 16 metra, jafnvel
mjórri og breiðari.
Óskar segir að Sómi 1500 sé fyrst og
fremst hugsaður sem fiskibátur en aðrar
útfærslur komi einnig til greina.
„Við teljum að eftirlitsiðnaðurinn sé í
miklum vexti og við eigum til útfærslu
af Sóma 1500 sem við köllum eftirlits- og
björgunarbát. Þessi útgáfa er tilvalin í
fiskveiðieftirlit eða sem björgunar- og
þjónustubátur t.d. fyrir björgunarsveitir.
Svo má ekki gleyma ferðaþjónustunni en
við getum boðið mönnum 60-100
manna farþegaferju sem að sjálfsögðu
kemst á 30 sjómílna hraða."
Óskar sagði að varðandi úreldingar
sem ekki liggja á lausu væri reynt að
höfða til þeirra sem væru á stærri bátum,
t.d. 50-150 tonna vertíðarbátum. Rétt
væri að benda útgerðarmönnum þessara
báta á að yfirleitt væri mjög hagkvæmt
að fiska þann kvóta sem slíkir bátar
hefðu á Sóma 1500 sem væri bæði ódýr-
ari í smíði og hagkvæmari í rekstri og af-
kastaði á við miklu stærri bát. □
Óskar Guðmundsson framkvœmdastjóri Bátasmiðju Guðmundar.
74 ÆGIR