Ægir - 01.09.1996, Qupperneq 92
AVS Hagtæki:
Hreint loft og þurrt
„Okkar sérgrein er loftstýrikerfi, innflutningur á lokum, tjökkum,
tengjum og öðrum íhlutum. Við bjóðum hönnun slíkra kerfa og full-
komna viðhaldsþjónustu," sagði Guðmundur S. Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri AVS Hagtækis í samtali við Ægi en hann á og rekur fyr-
irtækið ásamt Guðmundi Ó. Guðmundssyni.
AVS Hagtæki var stofnað í ársbyrjun
1987. Það er algerlega sjálfstætt en hef-
ur samvinnu við AVS Danmark. AVS er
skammstöfun fyrir Automatic Ventiler
System en samtök fyrirtækja á þessu
sviði hafa bundist samtökum um að
bjóða ákveðnar tegundir af íhlutum og
varahlutum í loftstýrikerfi og þess vegna
eru til fyrirtæki undir þessu nafni í
mörgum löndum og er það trygging fyr-
ir ákveðnum gæðum í vöruvali og þjón-
ustu. Þær vörur sem fyrirtækið býður
koma að mestu leyti frá Comozzi fyrir-
tækinu á Ítalíu.
„Loftstýritæknin hefur rutt sér mjög
til rúms í matvælaiðnaði og er í dag
mikið notuð í flæðilínum í frystihúsum,
flokkun og samvali í vinnslulínum og
víðar. Það er margt hægt að gera með
loftstýritækni og þetta snýst um að
hreyfa hluti með lofti í stað vökva eða
annars aflflutnings," sagði Guðmundur.
Loftstýrikerfi eru þannig í notkun í
mörgum frystihúsum og vinnsluskip-
um og einn höfuðkostur þeirra þykir
vera sá að verði leki, þá fylgir engin
mengun í kjölfarið. Mjög harðar og sí-
vaxandi kröfur í matvælaiðnaði hafa
leitt til þess að loftstýritækni er notuð í
auknum mæli. Þessi tækni er þægileg,
mengunarlaus og hagkvæm í rekstri.
Loftpressa hleður inn á kerfið og getur
keyrt það á allt að 10 bara þrýstingi.
Loftstýring hentar því vel til fíngerðari
stjórnunar þar sem mikils afls er ekki
krafist.
AVS Hagtæki selur mikið til framleið-
enda fyrir fiskiðnað og sjávarútveg.
„Það færist hins vegar í vöxt að
menn geri auknar kröfur til loftsins sem
er notað og erlendis er farið að setja
hreinsibúnað inn í svona kerfi við hlið
loftpressunnar. Það þarf að vera hægt að
kæla loftið niður til þess að ná vökva úr
því og einnig þarf að sía úr því meng-
andi efnL"
Guðmundur sagði að víða erlendis
væri farið að gera þær kröfur ti! slíkra
kerfa að hægt væri að dauðhreinsa það
loft er kemur í snertingu við matvæli og
eru menn hérlendis víða farnir að gera
sér grein fyrir mikilvægi þess.
Hann sagði ennfremur að á Sjávarút-
vegssýningunni myndi AVS Hagtæki,
sem staðsett verður á bás C-61, sýna
það nýjasta í loftstýrikerfum og enn-
fremur nýjar lausnir sem tengjast
mengunarmálum. Einnig verða þeir
með „róbót" sem afhendir gestum og
gangandi kókglas, en „róbótinn" er
hannaður og smíðaður af Guðmundi Ó.
Guðmundssyni í tilefni af Sjávarútvegs-
sýningunni.
„Varðandi mengunarþáttinn er það
að segja," sagði Guðmundur, „að við
notkun á olíusmurðum loftpressum við
framleiðslu á þrýstilofti blandast alltaf
nokkur hluti af smurningsolíunni við
loftið. Þessi olíuúrgangur kemur frá loft-
pressunni í fljótandi formi, blandaður
vatni og öðmm skaðlegum efnum. Þetta
er afar mengandi efni og samkvæmt er-
lendum og íslenskum reglugerðum er
stranglega bannað að henda þessu eða
losa í frárennsli eða niðurföll. Við höf-
um því hafið innflutning á sérstökum
Öwamat hreinsitækjum frá BEKO sem
leysa þennan vanda fyrir alla þá er reka
loftpressur og loftkerfi. Frekar hægt hef-
ur gengið að koma mönnum í skilning
um mikilvægi þessara hreinsitækja og
því hefur AVS Hagtæki farið út á þá
braut að lána fyrirtækjum þessa um-
hverfisvænu lausn til reynslu og er ó-
hætt að segja að góð reynsla þeirra af
tækjunum hefur leitt til þess að í flest-
öllum tilfellum hafa fyrirtækin talið sér
hag í því að kaupa búnaðinn.
Enn ein nýjung sem AVS Hagtæki
kynnir svo á sýningunni er danskur
tækjabúnaður sem gerir matvælafram-
leiðendum kleift að sótthreinsa fram-
leiðslurými á nýjan hátt. Það er gert
með því að dæla sótthreinsunarefnum
með sérstökum tækjum sem mynda
mjög þéttan og fínan úða. Með því að
hafa smá yfirþrýsting í rýminu sem
hreinsa skal, næst alger sótthreinsun
„TOTALDESINFEKTION". Þetta er vin-
sælt í matvælaiðnaði erlendis, en nýtt
hér á landi en myndi henta vel í við-
kvæmri vinnslu eins og t.d. í rækju- og
kjötiðnaði," sagði Guðmundur S. Guð-
mundsson að lokum. □
Guðmundur Ó. Guðmundsson
markaðsstjón og Guðmundur S.
Guðmundsson framkvœmda-
stjóri hjá AVS Hagtœkjum.
92 ÆGIR