Ægir - 01.09.1996, Qupperneq 152
Vélsmiðjan Nonni hf
Deutz-vélar, gámapokar
og kínversk skip
Vélsmiðjan Nonni hf. er rótgróið fyrirtæki, stofnað árið 1915 norður í
Ólafsfirði, en hefur verið starfrækt í Reykjavík frá árinu 1975. Þar
halda um stjórnvölinn feðgarnir Þorsteinn S. Jónsson og Þorsteinn J.
Þorsteinsson og þótt þeir séu hættir að reka vélsmiðju eru þeir enn á
kafi í vélum. Þeir eru nefnilega umboðsmenn fyrir skipavélar með hin-
um þekktu þýsku merkjum Deutz-MWM.
Deutz-MWM sameinuðust árið 1988.
í ár hefur orðið uppstokkun hjá fyrir-
tækinu og heitir það núna Deutz AG
sem einbeitir sér að framleiðslu á dísil-
vélum. Það skiptist þannig að
Deutz-MWM framleiðir vatnskældar
skipa- og bátavélar, Deutz Motor GMBH
framleiðir loftkældar og olíukældar vél-
ar sem gagnast bæði flotanum og þó
sérstaklega verktökum í landi og loks
Deutz Service International GMBH sem
sér um varahlutasölu fyrir allar vélar
sem framleiddar eru undir merki Deutz
AG.
Fyrirtæki þeirra feðga hefur umboð
fyrir allar vélar framleiddar undir merki
Deutz AG, svo og varahluti í þær. Fyrir
u.þ.b. fjórum árum komst á samstarf
milli Vélsmiðjunnar Nonna hf. og
Deutz Service Danmark A/S í Kaup-
mannahöfn sem er að fullu í eigu Deutz
AG. Síðan hefur þjónustan batnað veru-
lega þar sem ferðir frá Danmörku til ís-
lands eru mjög tíðar. „Verðið á vara-
hlutunum er það sama en við höfum
komist allt niður í sex klukkustunda af-
greiðslu á varahlutum frá því þeir voru
pantaðir þar til þeir voru komnir í
hendurnar á viðskiptavininum," segir
Þorsteinn yngri.
Hann bætir því við að Danirnir sýni
íslandi mikinn áhuga og ætli þeir að
fjölmenna á sýninguna. Þar verður
kynnt ný kynslóð af vélum frá Deutz
sem gerðar em til að uppfylla alla meng-
unarstaðla sem Evrópusambandið setur.
Ferskleikinn helst í 21 dag
Önnur nýjung sem kynnt verður á
sjávarútvegssýningunni eru sérstakir
loftskiptir gámapokar sem notaðir eru
til að auka geymslutíma ferskra fiskaf-
urða sem fluttar eru út í gámum.
„Við geymdum í þessum umbúðum
eldislax í 21 sólarhring og fengum hann
dæmdan fyrsta flokks hjá Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins," segir Þorsteinn
eldri. „Þessir pokar em sérhannaðir fyr-
ir gámaflutninga og henta bæði 20 og
40 feta gámum, auk þess sem hægt er
að fá þá minni. Eftir hleðslu er pokinn
lofttæmdur og síðan dælt í hann þeirri
loftblöndu sem við á. Þetta sparar dýra
flugfrakt. Pokarnir henta líka fyrir salt-
fisk því hann gulnar ekki við geymslu,
léttist minna og það myndast enginn
roði í honum.
Pokarnir eru framleiddir í Bretlandi
en bandarískt fyrirtæki á og hefur feng-
ið alþjóðlegt einkaleyfi á aðferðinni við
að halda pokunum þannig í gámunum
að hægt sé að stafla þeim. Pokarnir era
framleiddir úr vistvænu plasti, eru
fimmfaldir og það má keyra lyftara á
þeim án þess þeir skemmist. Um þessar
mundir fara fram tilraunir til að geyma
í pokunum ferskt lambakjöt og lofa þær
góðu," segir Þorsteinn.
Kínversk gæðaskip
Síðast en ekki síst hafa þeir feðgar
tekið höndum saman við aðra feðga,
Þorbjörn Á. Friðriksson og Steingrím
Þorbjöm Á. Friðriksson forstjóri Varðelds,
Þorsteinn S. Jónsson forstjóri Nonna og
Þorsteinn J. Þorsteinsson framkvæmdastjóri
Nonna.
son hans, og fengið umboð fyrir kín-
verska fyrirtækjasamsteypu sem starf-
rækir sjö skipasmíðastöðvar í Kína og
rekur fjölda verksmiðja sem framleiða
hverskyns tækjabúnað í skip. Fyrirtæk-
ið heitir Changjiang Shipping Group.
Tengslin við þetta fyrirtæki eru til-
komin í krafti þess að Steingrímur teng-
ist stjórnendum fyrirtækisins fjölskyldu-
böndum. Fyrirtækið hefur smíðað flest-
ar ferjur sem sigla á hinu volduga Jangt-
se-fljóti (þær em um 2000 talsins), auk
fjölda annarra skipa, fiskiskipa, farþega-
skipa, flutningaskipa og sérhæfðra skipa
af ýmsu tagi.
Kínverska fyrirtækið getur smíðað
skip fyrir íslendinga sem eru miklu
ódýrari en skip sem smíðuð eru í Evr-
ópu. Gæðin em fyllilega sambærileg því
skipin eru smíðuð eftir þeim alþjóðlegu
stöðlum sem kaupandinn kýs. Til marks
um gæði framleiðslunnar má nefna að
fyrirtækið framleiðir vélar, skrúfur og
margvíslegan annan búnað undir
merkjum margra þekktustu fyrirtækja
Evrópu sem treysta því vel fyrir að
standast ströngustu gæðakröfur.
Þeir fjórmenningar hafa stofnað fyr-
irtækið Varðeldur ehf. um þessi við-
skipti sem þeir segja Kínverjana vera
mjög áhugasama um. í Kína séu að
opnast stórir markaðir og Varðeldur hafl
öll leyfi til viðskipta þar. Þarna bjóðist
ódýr og vel byggð skip og viðskiptin
gangi hratt og vel fyrir sig. Þeir segjast
geta gengið frá hlboði í smíði togara eða
loðnuskips á fáeinum dögum. □
152 ÆGIR