Ægir - 01.09.1996, Qupperneq 166
Besta hf
hreinlæti
Sérfræðingar í
„Á undanförnum árum hefur gæðastjórnun rutt sér mjög til rúms í
sjávarútvegi og öllum matvælaiðnaði og því hefur fylgt ný hugsun og
auknar kröfur," sagði Friðrik Ingi Friðriksson framkvæmdastjóri Besta
í samtali við Ægi.
Að sögn Inga mun Besta einkum
leggja áherslu á þrennt á sjávarútvegssýn-
ingunni og allt eru það hlutir sem sér-
staklega henta sjávarútvegi og fisk-
vinnslu sem er stöðugt vaxandi markað-
ur fyrir Besta og þær vörur sem fyrirtækið
býður.
„í fyrsta lagi eru það hreinlætisáhöld
frá danska fyrirtækinu Vikan sem hafa
viðurkenningu til notkunar í matvæla-
iðnaði og standast mjög vel þær miklu
kröfur.
í öðru lagi er það okkar framleiðsla á
ýmsum sérútbúnum burstum fyrir fisk-
vinnsluvélar og færibönd. Menn eru
stöðugt að átta sig betur á notagildi sér-
hæfðra bursta af ýmsu tagi til nota við
færibandastýringar, sem hluta af ýmsum
sérhæfðum fiskvinnsluvélum og víðar."
Besta hf. framleiðir bursta eftir þörfum
hvers og hefur þannig tekið virkan þátt í
þeirri nýsköpun sem hefur að undan-
förnu átt sér stað í iðnaði tengdum sjáv-
arútveginum. Uppfinningamenn og
hönnuðir sem sjá fjölþætt notagildi
bursta í stað hnífa eða þéttinga leita til
Besta. Starfsmenn fyrirtækisins leggja
mikið kapp á að veita sem besta ráðgjöf
og fyrirgreiðslu og byggja þar á áratuga
reynslu á þessu sviði.
„Þriðja atriðið sem við leggjum mikla
áherslu á er síðan sápur og sápuskammt-
arar fyrir starfsmenn. Sápuskammtararn-
ir okkar eru með sápuna í algjörlega lok-
uðu hólfi því hún er í pokum og þegar
hver poki er tómur er nýr settur í.
Auk þess bjóðum við sérstakt hreinsi-
efni til að nota þegar ekki er þörf á þvotti
heldur sótthreinsun með sprittblöndu
sem drepur 99% allra þekktra gerla á 15
sekúndum en þurrkar ekki húðina."
Besta var stofnað 1987 en saga þess er
í raun miklu iengri. Hana má rekja aftur
tii ársins 1930 þegar Hróbjartur Árnason,
Friðrik Irtgi Friðriksson framkvœmdastjóri
Besta.
fyrsti íslendingurinn með meistarabréf í
burstagerð, stofnaði fyrirtækið Bursta-
gerðina sem trúlega flestir þekkja.
Besta var upphaflega deild í Bursta-
gerðinni, síðar sjálfstætt fyrirtæki og varð
fljótlega margfalt stærra en móðurfyrir-
tækið. Nú er Besta-nafnið notað á allar
vörur sem fyrirtækið framleiðir og selur.
Árið 1990 var opnað útibú frá Besta á
Suðurnesjum sem nýlega flutti í nýtt
húsnæði.
„Það má segja að með stofnun Besta
hafi Burstagerðin flust til nútímans," seg-
ir Friðrik Ingi.
Besta er fyrirtæki sem sérhæfir sig í
öllu sem lýtur að hreinlæti og hreingern-
ingum eins og nútímarekstur gerir kröfu
til að staðið sé að þeim. Besta selur gólf-
hreinsiefni fyrir hörð gólf frá Butchers og
efni og áhöld sérstaklega fyrir eldhús frá
Ecolab sem er stærsta fyrirtæki í heimin-
um á því sviði. Húðhirðuefni og sápu-
skammtarar eru frá Gojo sem er enn-
fremur eitt hið stærsta í heimi á því sviði.
Frá Vikan koma burstar og áhöld til
hreingerninga en moppuvagnar, ræst-
ingavagnar og slíkir hlutir frá Jani-Jack.
Auk þessa býður Besta margvísleg áhöld,
s.s. bursta, kústa, plastpoka, gúmmí-
hanska, pappírsþurrkur, pokagrindur,
moppur og þessháttar sem að gagni kem-
ur við hreingemingu. Sumir burstarnir
eru eigin framleiðsla, s.s. bílakústar, strá-
kústar, skrúbbur og burstamottur, meðan
annað er innflutt.
Einnig selur Besta vélar til gólfþvotta
og vélsópa frá Hako, gólfhirðuvélar frá
Clarke, Windsor og fleirum og eru með
fjölbreytt úrval af vatnssugum og teppa-
hreinsivélum. Auk þessa selur Besta snjó-
plóga og götusópa fyrir sveitarfélög, flug-
velli og gatnakerfi þannig að hreinlæti og
hreinsun á stórum sviðum og smáum er
það sem fyrirtækið fæst við. En það er
stöðugt unnið að því að fullkomna
vinnubrögð og bæta í hreinlætisiðnaðin-
um.
„Það sem er helst að ryðja sér til rúms
er svæðaskipting og notkun mismunandi
lita sem mjög mikið er notuð erlendis. Þá
eru notaðir ákveðnir burstar og tæki á á-
kveðnum svæðum og merkt með litum.
Til dæmis gætu verið rauðir burstar í
móttökunni í frystihúsi, bláir í vélasal og
hvítir í vinnslusal og þess gætt að vinna
aðeins með hverjum bursta á sínu svæði.
Sum fyrirtæki kjósa reyndar að nota lá-
rétta skiptingu og nota einn lit af burst-
um á gólf, annan á veggi og þann þriðja
á borð og tæki í vinnsluhæð."
Friðrik Ingi segir að þessi hugsunar-
háttur ryðji sér mjög til rúms, einkum
eftir því sem gæðastjórnun í matvælaiðn-
aði verður útbreiddari.
„Stundum átta menn sig ekki á þýð-
ingu þessa en þá er nóg að minna á sam-
líkinguna um klósettið og eldhúsvaskinn.
Þar notar þú ekki sömu burstana." □
166 ÆGIR