Ægir

Volume

Ægir - 01.05.1997, Page 8

Ægir - 01.05.1997, Page 8
Svo virðist sem umhverfisverndarsinn- ar stefni nú markvisst að því að telja almenningi í Evrópu og vestan hafs trú um að stjórnvöld og útgerðarmenn séu alls ekki fær um að nýta auðlindir hafsins með skynsamlegum hætti og ab nær allir fiskstofnar heimshafanna séu í hættu vegna gengdarlausrar rányrkju. Og raunar má ætla að þeim hafi þegar orðið nokkuð ágengt í þess- um efnum. Reynslan hefur því miður sýnt að það skiptir ekki höfuðmáli hvort fullyrðingar umhverfisverndar- samtaka eiga við rök að styðjast eða ekki. Það er sú ímynd af fiskveibum sem þessum samtökum tekst að skapa í huga almennings sem skiptir öllu máli og ræður úrslitum. Þetta ættu Is- lendingar ab þekkja af eigin raun: við höfum ekki enn hafiö hvalveiðar enda þótt fyrir liggi að langflestir hvala- stofnar við ísland myndu þola skyn- samlega nýtingu. Við veltum þó engu að síöur enn fyrir okkur þeim mögu- leika að hefja veiðar á ný. Þótt skoskir sjómenn hafi vaxandi áhyggjur af ört stækkandi útselsstofni undan Skot- landi hvarflar vart lengur að þeim að stinga upp á ab hefja veiðar að nýju því nær vonlaust er talið ab þab feng- ist nokkru sinni samþykkt. Þess í stað leggja þeir til að selirnir verði fangaðir lifandi og fluttir burt á hafssvæði þar SJÁVARSÍÐAN Arnór Gísli Ólafsson skrifar um ímynd fiskveiða og baráttu umhverfis- verndarsamtaka sem þeir eru í útrymingarhættu eða minna er af þeim. Bræðsluveiðar Ljóst er að umhverfissamtök ætla alls ekki að láta staðar numið við baráttu gegn sel- eða hvalveiðum. Samtök af þessu tagi þrífast aðeins að því gefnu að baráttan haldi stöðugt áfram. Á því byggja þau fjárhagslega afkomu sína, og því þurfa þau að finna sér nýja víg- velli. Barátta þeirra gegn rækjueldi í Asíu hefur þegar haft veruleg áhrif og svo kann ab fara að laxeldi verði næsta skotmark. Talið er að þar muni umhverfissamtök beina spjótum sín- um að efnaúrgangi í laxeldi svo ekki sé minnst á þá sem stunda erfðafræðileg- ar rannsóknir á laxi til þess að hraba vexti hans. Herferö Grænfriðunga gegn bræbsluveiðum í Norðursjó síð- asta sumar er liklega aðeins fyrsta skrefib i miklu stærri herferð sem síðar meir mun beinast gegn veiðum á ákveðnum matfisktegundum. í samtali við Ægi sagði Dr Stuart Barlow, framkvæmdastjóri Alþjóba- samtaka fiskmjölsframleiðenda, óttast að samtökin kunni að snúa sér að bræösluveiðum við ísland, Noreg, Perú og Chile. Greinilegt hafi verið að herferðin gegn sandsílaveiöum Dana undan Skotlandi hafi veriö vel skipu- lögð og þá ekki síst með tilliti til fjöl- miðla. Reyndin varð og sú að breskir fjölmiðlar gripu fullyröingar Grænfrið- unga á lofti og segja má ab vikum saman hafi breskir fjölmiblar verið undirlagðir beinum áróðri og fullyrð- ingum frá Grænfriðungum án þess að reynt hafi verib ab leggja mat á trú- verðugleika fullyrðinganna. Nær eng- um fjölmiðli datt í hug að minnast á að Alþjóða hafrannsóknarrábið, sem nýtur alþjóölegrar viðurkenningar, teldi sandsílastofninn ekki vera í hættu eða hitt að Danir væru þar að löglegum veiðum. Þessar staðreyndir féllu algerlega í skuggann af fullyrð- ingum Grænfriðunga um að veiðarnar væru stjórnlausar og þær ógnuðu ekki aðeins stofnunum sjálfum heldur 8 ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.