Ægir - 01.05.1997, Blaðsíða 11
Úr loðdýrarækt í fiskhausaþurrkun með góðum árangri:
w
Utf lutn i ngsvara verður
til á Flúðum
heimsókn í fyrirtækið Flúðafisk
„Það má eiginlega segja að núna sé
að verða sprenging í þessu hjá okkur.
Framboð á hráefni er mikið og eigin-
lega höfum viö varla undan að
verka," segir Gunnar Hallgrímsson,
framkvæmdastjóri og einn eigenda
Flúðafisks hf. á Flúðum, þegar Ægir
heimsótti fyrirtæki hans nýverið.
Vanalega er fiskverkanir að finna við
sjávarsíðuna en sem betur fer eru
þess dæmi að störf tengd sjávarút-
vegi hafi líka orðið upp til sveita,
eins sannast á Borgarási við Flúðir.
Gunnar var á árum áður í loðdýra-
rækt en hörfaði úr þeirri grein eins og
svo margir aðrir og samtvinnaði þekk-
ingu sína úr störfum við sjávarútveg og
hugvit að breyta loðdýrahúsi í hausa-
verkun. Framleiðnisjóður landbúnað-
arins lagði þessu framtaki lið á árinu
1993 þegar Gunnar fór af stað og
óhætt er að segja að verkunin hafi síð-
an eflst jöfnum skrefum.
sveita höfðu skipt yfir í rúlluheyskap
en blásararnir koma í góöar þarfir í
fiskverkuninni við að blása heitu lofti í
gengum þurrkklefana. „Ég er samt ekki
viss um að þetta sé hlutur sem allir
gætu farið út í. I mínu tilfelli nýtti ég
mér reynslu úr fyrri störfum við sjávar-
útveg og síðan þarf aðstaðan að vera
fyrir hendi, sem og hráefni," segir
Gunnar.
Úr verkuninni hjá Flúðafiski. Þetta litla fyrirtœki langt uppi í landi hefur skapað 10-12
ársverk við vinnslu á sjávarafurðum. MyndmjóH
Á síðasta ári verkaði Flúðafiskur úr
um 1400 tonnum af blautu hráefni en
frá áramótum fram aö síðustu páskum
var hráefnið komið í nærri 700 tonn
og flest bendir til aö sett verði met í
framleiðslunni þetta ári. Gunnar segir
að með verkuninni hafi orðið til 10-12
heilsársstörf en vinnsla er árið um
kring. Afurðirnar fara allar á markað í
Nígeríu en SÍF sér um sölumálin.
Gunnar segist ekki sjá því neitt til
fyrirstöðu að reka verkun af þessu tagi
þetta langt frá sjó. Hann nýtti sér land-
kosti á jörðinni og boraði eftir heitu
vatni við hlið loðdýraskálans og þar
fær hann nægt vatn til ab nota við
þurrkunina. Víba voru fáanlegir súg-
þurrkunarblásarar þegar bændur til
Gunnar Hallgrímsson með haus sem senn verður veislumatur á borðum í Nígeríu.
ÆGIR 1 1