Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1997, Blaðsíða 9

Ægir - 01.05.1997, Blaðsíða 9
Stuart Barlow, framkvœmdastjóri Alþjóðasamtaka fiskmjölsframleiðenda, óttast að Grœnfriðungar snúi sér ncest að baráttu gegn brœðsluveiðum íslendinga og fieiri þjóða og fylgi þannig eftir vel skipulögðum aðgerðum gegn brœðsluveiðum í Norðursjó. Mynd: Þorgeir Baldursson einnig öðmm fiskistofnum, fuglum, einkum lunda, og sjávarspendýrum. Ekki leið á löngu uns sjávarútvegsris- inn Unilever tilkynnti að fyrirtækið myndi hætta að kaupa lýsi unnið úr bræðslufiski úr Norðursjó sem ekki væri nýttur á sjálfbæran hátt. Önnur stórfyrirtæki á borð við Sainsbury, Co'op, United Biscuits og Tesco ákváðu einnig að hætta notkun afurða af bræðsluveiðum úr Norðursjó í fram- leiðsluvörum sínum. Sem dæmi um hertækni Grænfriðunga má nefna að um 150 þeirra klæddu sig upp sem lunda og mótmæltu fyrir utan eina af verksmiðjum United Buscuits. Ekki liðu nema nokkar klukkustundir uns United Buscuits tilkynnti opinberlega að fyrirtækið myndi innan árs hætta notkun lýsis sem unnið væri úr fiski sem ekki eru stundaðar sjálfbærar veið- ar á. Að sögn Barlows hafði herferð Grænfriðunga takmörkuð áhrif á eftir- spurn eftir mjöli og lýsi enda var hún einskorðuð við Bretlandseyjar. Talið er að eftirspurn í Bretlandi hafi dregist saman um rúm 10.000 tonn á ári þar sem ákvörðun Unilever um að hætta notkun á lýsi lá fyrir áður en Grænfrið- ungar létu til skarar skríða en fyrirtæk- ið notaði um 60.000 tonn á ári. Á heimsvísu minnkaði framboð á Iýsi þannig að verð á því lækkaði ekki. Barlow dregur hins vegar ekki í efa aö aðgerðir Grænfriðunga og öll um- fjöllunin í fjölmiðlum hafi haft mjög slæm áhrif á ímynd fiskveiðanna í aug- um almennings. Hér sýndi sig enn og aftur hversu greiðan aðgang umhverf- issamtök eiga að fjölmiðlum og hversu mjög skortir á að sjávarútvegurinn í heild bregðist við aðför af þessu tagi. í upphafi virtust mörg samtök sjómanna á Bretlandseyjum leggja blessun sína yfir þessar aðgerðir þar sem þær beindust einkum og sér í lagi að Dön- um en afstaða þeirra virðist þó hafa breyst nokkuö síðan. Ekki bætti heldur úr skák að jafnt almenningur sem og mörg stórfyrirtækjanna vissu harla lítið um bræðsluveiðar eða með hvaða hætti þeim er stjórnað. Herferð gegn neyslu á matfiskum í uppsiglingu Hætt er við að sú mynd sem neytendur í Bretlandi og á meginlandi Evrópu hafa af fiskveiðum og ástandi fiski- stofna sé allt önnur en almenningur til að mynda í Noregi eða á íslandi hefur. Staðreyndin er sú að hin sameiginlega fiskveiðistefna Evrópusambandsins er komin í verulegar ógöngur og raunar hefur það lengi verið ljóst. Margir helstu fiskistofnar innan lögsögu bandalagsins era ofnýttir en flestir aðr- ir fullnýttir og illa hefir gengið að skera niður afkastagetu ESB-flotans. í ofanálag logar allt í innbyrðis deilum milli einstakra ríkja þegar kemur að því að taka mikilvægar ákvarðanir, ekki síst þegar skera á niður í kvótum eða fiskveiðigetu. Nýleg niðurstaða ríkja ESB um niðurskurð á kvótum í Norður- sjó, þar sem ekki var gengið eins langt __________________________ ÆGIR 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.