Ægir - 01.05.1997, Blaðsíða 28
Oft tviimast hagsmunir iðnaðar og sjávariitvegs saman. Aukinn útflutningur Hampiðjunnar byggir að miklu leyti á Gloríutrollum en
frumherjar í notkun þeirra voni hafnfirskar útgerðir. Hér eru Gunnar Svavarsson, forstjóri Hampiðjwmar, og Guðrún Lámsdóttir frá
Stálskipum við afhendingu útflutningsverðlauna forseta íslands fyrir skömmu en þau komu nú í hlut Hampiðjunnar.
Verðlaunafyrirtækið Hampiðjan hf. hefur aukið útflutning sinn
verulega á síðustu árum:
Verðum að ná árangri
á eigin forsendum
segir Gunnar Svavarsson, forstjóri
Við erum líklega eina fyrirtœkið í
heiminum, a.m.k. eitt af örfáum, sem
er með allt framleiðsluferlið undir
sama þaki og vinnur vöruna frá
grunni. Við fmmleiðum allt sem við
getum frá grunni. Sum efni eru bara
búin til í sérhœfðum verksmiðjum en
öll önnur framleiðum við sjálfir úr
plastkornum. Með því að hafa f am-
leiðsluna á einni hendi er öll vöruþró-
un og þjónusta miklu auðveldari. Það
er gríðarlega mikilvœgt að geta brugð-
ist fljótt við, t.d. efbreyta þarfmöskva-
stœrð, taka inn nýja tegund af garni
eða köðlum eða hvað sem er. Að þessu
leyti höfum við mikla sérstöðu," segir
Gunnar Svavarsson, forstjóri Hampiðj-
unnar hf., í samtali við tímaritið Ægi.
28 ÆGIR