Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.05.1997, Qupperneq 10

Ægir - 01.05.1997, Qupperneq 10
og stefnt haföi verið að, er dæmi um þetta og svo þær samþykktir sem gerð- ar voru á ráðstefnu ríkjanna við Norð- ursjó. Þar náðu tillögur Norðmanna um reglur um brottkast afla ekki fram að ganga, en aldrei þessu vant gleymdu umhverfissamtök, sem sóttu fundinn, algerlega hvalveiðum Norð- manna og studdu tillögur þeirra. Af skýrslu norsku hafrannsóknar- stofnunarinnar má ráða að flestir þeir fiskistofnar sem Norðmenn stjórna sjálfir eða í samvinnu við Rússa eru nú í góðu ástandi. Á hinn bóginn eru margir stofnar, s.s. síld, makrill, þorsk- ur og ýsa, sem Norðmenn deila með ESB í Norðursjó, greinilega ofveiddir. ESB verður sífellt háðara innflutningi á fiski og skapar það tækifæri fyrir aðr- ar fiskveiðiþjóðir. Hins vegar kann slæleg fiskveiðistjórnun bandalagsins að gera fisk sem neysluvöru tortryggi- legri í augum þorra almennings í Evr- ópu í framtíðinni, ekki síst ef um- hverfissamtök taka að beina sjónum sínum að matfiskitegundum eins og margt bendir nú til. Hinn almenni neytandi fær þær fréttir einar að þorskstofninn í Norðursjó sé nálega að hruni kominn og ýsustofninn sé í mikilli hættu og lítið sé eftir af síld og makríl. Hann sér auglýsingar þess efn- is að verið sé að draga allra síðustu fiskana á land en hitt veit hann líklega alls ekki að þorsk- og ýsustofnarnir í Barentshafi eru í sögulegu hámarki, að þorskstofninn við ísland er greinilega á uppleið og að miðin undan Færeyj- um eru svört af þorski. Fyrir skemmstu birti World Wildlife Foundation (WWF) auglýsingu í BBC Wildlife Magazine sem orðrétt hljóð- aði svo: „Ofveidi á fiski: efvið höldum áfram að veiða fisk og menga höfin með sama hraða og nú verður ekkert eftir af fiski í sjónum. WWF stefnir að því að hafa áhrif á með hvaða hœtti fiskveiðar eru stundaðar og hvemig kvótum er úthlutað. Þú getur lagt þitt af mörkum með því að hugsa þig tvisvar um áður en þú kauþir þérþorsk eða ýsu." Enda þótt samtökin hafi síðar beðist afsökunar á því að ekki hafi ver- ið gerður greinarmunur á því um hvaða þorsk og hvaða ýsu væri að ræða er þetta ekki fyrsta vísbendingin um að samtökin hyggist beina spjót- um sínum aö veiðum á almennum tegundum eins og þorski og ýsu. WWF hefur áður farið herferð í blöð- um undir yfirskriftinni „síðasti fiskur- inn" og birt mjög áróðurskenndar auglýsingar í sjónvarpi þar sem afkára- legir sjómenn berjast um síðasta fisk- inn. Það má því vera ljóst að hverju stefnir í þessum efnum o g eins lík- legt ab neytandinn geri ekki mikinn greinarmun á því hvort þorskurinn eða ýsan sem hann hættir vib að „ WWF hefur áður farið í herferð í blöð- um undir yfirskrift- inni „síðasti fiskur- inrí' og birt mjög áróðurskenndar aug- lýsingar í sjónvarpi þar sem afkáralegir sjómenn berjast um síðasta fiskinn." kaupa hafi verið veidd í Norðursjó, undan íslandi eða Noregi. Oddmund Bye, formaður Norges Fiskerlag, brást til að mynda mjög hart við þessari auglýsingu og benti réttilega á að þorsk- og ýsustofnarnir í Noröaustur- Atlantshafi væru í miklu betra ástandi en flestir aðrir fiskstofnar í heiminum og því væri nær lagi að hvetja neyt- endur til þess að borða þorsk og ýsu. Á óformlegum fundi Fiskifélags ís- lands um umhverfismál kom fram að íslenskir aðilar í sjávarútvegi hafa verulega áhyggjur af því hvert stefni í þessum málum og virtust flestir fund- armenn sammála um ab íslendingar þyrftu að móta sér skýra stefnu og koma betur á framfæri hvernig fisk- veiðistjómun hér er háttað og skoða mögulega gæbamerkingu fisks héðan. Umhverfið og markaðurinn Öll umræðan um umhverfismál er ná- tengd árangri á markaði og Norðmenn hafa nokkrar áhyggjur af því aö áróður af þessu tagi kunni að skaða útflutn- ingshagsmuni Noregs. Þeir vinna nú leynt og ljóst ab því ab leggja áherslu á ábyrga fiskveiðistefnu sína, líklega með einhvers konar gæðavottun sem gæfi til kynna að afurðirnar séu fengn- ar úr fiskistofnum sem skynsamleg stjórnun er á. Greinilegt er að þeir hafa ekki hugsað sér að beygja sig undir gæðavottun Marine Stewardship Council enda ekki hlutverk umhverfis- samtaka og risafyrirtækis að taka sér slíkt vald. Þeim er hins vegar ljóst að ekki er nóg að nýta auðlindir hafsins skynsamlega heldur þarf einnig að kynna slíkt út á við og þab kostar verulega fjármuni. Herferð gegn neyslu á almennum fisktegundum ógnar vitaskuld hagsmunum íslend- inga líka og sagan ætti að kenna okkur að það er ekki ástæða til annars en að taka þessi mál alvarlega og huga vand- lega að því hvemig skuli bregðast við. Öfugt við okkur hafa Norðmenn markað sér skýra stefnu um að nýta allar auðlindir hafsins með skynsam- legum og ábyrgum hætti. í samskipt- um við umhverfissamtök og þjóðir heimsins hafa þeir dregið sér víglínu og ákveðið ab standa föstum fótum þar. Fyrri reynsla okkar af umhverfis- samtökum segir okkur að líklega þurfa íslendingar fyrr eba síðar að ákveða hvar víglína þeirra skuli liggja því ástæðulaust er að ætla að við stöndum á griðlandi til frambúðar þó engir séu hvalirnir veiddir. Kannski eigum vib bara tvo kosti og báða vonda. Að hopa og hopa þá oftar en einu sinni eða hinn að draga jafnmikinn lærdóm af ræðu Einars Þveræings og Norðmenn virðast hafa gert. 1 0 ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.