Ægir - 01.05.1997, Page 17
milljaröar króna á árinu 1996 og hefur
þaö aukist um 7% milli ára meöan
magniö jókst um 28%.
Hlutur fiskmarkaða vex með hverju
árinu. Þegar hlutur þeirra er skoðaður,
er sanngjarnt að draga frá uppsjávar-
fiska því þeir fara nánast aldrei um
markaði þó í reynd sé sá fiskur eins og
t.d. loðna á hörðum uppboðsmarkaði.
Þau uppboð fara í gegnum fjarskipti en
ekki formlega markaði. Einnig ætti að
draga frá afla vinnsluskipa og afla af
fjarlægum miðum sem mestallur kem-
ur unninn á land. Svo og þann afla
sem siglt er með beint á erlendan
markað.
Sé þetta gert þá fara um markaði hér
á landi um 111 þúsund tonn af um
406 þúsund tonna afla eöa um 27%. Ef
þetta magn er sett sem hlutfall af afla á
íslandsmiðum utan uppsjávarafla, þá
verður það um 20%.
Verðmat
Ef verðmæti aflans er umreiknað í SDR
verður það 595 þúsund SDR á árinu
1996 og hefur hækkaö um 8% milli ára
eða úr 553 þúsund SDR árið 1995.
Myndin sýnir einnig að virði fiskaflans
hefur stöðugt aukist og er það annars
vegar magnið sem eykst og hins vegar
verðþróun á fiskafurðum í heiminum
sem almennt hefur verið heldur upp á
við, þó verðlagið sveiflist til eins og
myndin sýnir.
Skipastóllinn
Þilfarsskip í íslenska fiskiskipaflotanum
voru í árslok 1996 800 talsins. Þau
mældust 130.944 brúttórúmlestir og
höfðu aðalvélar sem gáfu 432.701 kw..
Meðalaldur skipanna var 19,3 ár.
Samkvæmt skrá Fiskifélags íslands
voru opnir bátar sem höfðu lagt upp
afla á árinu 1996 1.044 talsins.
Opnir bátar samkvæmt skrá Sigl-
ingastofnunar íslands voru 1.534
Virði heildaraflafengs í milljónum SDR
ÆGIR 1 7