Ægir

Volume

Ægir - 01.05.1997, Page 25

Ægir - 01.05.1997, Page 25
Greinarhöfundur segir að vegna reglna á íslandi þurfi að miða við 20-30 ára gamlar for- sendur þegar endumýja eigi gömul skip. uynd: Þorgeir Baidursson 40%. Ég er hræddur um að það kæmi illilega niður á þjóðarhag, allt úreltum reglugerðar ákvæðum stjórnvalda að kenna. Dæmi um stærðarmun á sambærilegum skipum á 20-30 ára tímabili Nótaveiðiskip Skip byggt árið 1966 í Noregi fyrir ís- lendinga. Upphafleg aðalmál eru: Mesta lengd 37,58 m Breidd 7,60 m Dýpt að aðalþilfari 3,80 m Skipið var lengt um 4,00 m og byggt yfir það árið 1976 og lengt aftur um 5,00 m 1987 og þá einnig skuti þess breytt. Aðalmál skipsins eru því orðin í dag: Mesta lengd 50,29 m Breidd 7,60 m Dýpt að aðalþilfari 3,80 m Þetta skip mælist 1308 m3. Það kemur að landi í dag með um 750 tonn af ókældri loðnu. Sambærilegt nýtt skip í dag viö þetta 30 ára gamla skip, með sömu burðargetu og gamla skipið hefur, er með eftirfarandi aðalmál: Mesta lengd 50,45 m Breidd 12,00 m Dýpt ab aðalþilfari 5,50 m Þetta skip mælist í rúmmetrum 2891 m3 og kæmi með ab landi 750 tonn af kældri loönu. Hér er um að ræba sambærileg skip, miðað við aöstæður á þeim tíma, sem hvort skipið er byggt á, eða endur- bætt. Mismunur í rúmmetrum er 1583 m3. Helsti munurinn á þessum tveimur skipum er: Vistarverur áhafna eru í gamla skip- inu 81 fermetri að grunnfleti (u.þ.b. 174 rúmmetrar) fyrir 15 menn eða 5,4 fermetrar á mann. í nýja skipinu eru vistarverurnar 235 fermetrar að grunn- fleti (u.þ.b. 587 rúmmetrar) fyrir 13 menn eða 18,1 fermetri á mann. Rými í nýja skipinu fyrir kælibúnað fyrir aflann er um 130 rúmmetrar, en ekkert slíkt rými er í gamla skipinu. Lestarrýmið í gamla skipinu er um 750 rúmmetrar, en í því nýja 1000 rúmmetrar. Þessir 250 rúmmetrar í mismun eru notaðir fyrir kældan sjó eða ís og sjó saman til ab kæla 750 tonna farminn. Vélarrúmið í gamla skipinu er um 104 rúmmetrar að stærð og upphaf- lega aðalvélin um 800 hestöfl. Nýja skipið er með vélarúm upp á um 482 rúmmetra og aöalvél um 3300 hestöfl. Hvað varðar fríborð þessara skipa þá eru þau ekki sambærileg. Gamla skipið fullhlabið er með um 70 cm frí- borð miðskips, og bóghæð, þ.e. fjarlægð frá sjólínu að bakkaþilfari, um 2,0 m. Nýja skipiö er meb um 2,0 m fríborð miðskips og bóghæð upp á 4,0 m. Til að gamla skipiö hafi hlið- stætt fríborð og það nýja, þarf gamla skipið að hafa u.þ.b. 400 rúmmetra meira særými en þab hefur í dag, til að bera þennan lobnufarm ókældan. Til viðbótar þarf svo særými upp á um 250 rúmmetra til að bera kældan sjó til að kæla niður aflann. Heildarrúmmálið, sem vantar upp á ab gamla skipið uppfylli kröfur tímans eru því um 1821 rúmmetri. Hér er bæði um rúmmetra undir og yfir aðal- þilfari að ræða, þannig að eðlilegt er, ab rúmmetrarnir vegna endurnýjunar- reglunnar eru ekki þeir sömu og þetta, þar sem þeir reiknast aðeins undir að- alþilfari. Af ofangreindu sést, að fyrir nóta- veibiskip, þá þarf um 1800 rúmmetra til viðbótar í gömlu skipin til að upp- fylla kröfur dagsins í dag, varðandi meðferð aflans, abbúnað áhafnar og öryggi skipsins. Smíðaverð fyrir svona nýtt skip myndi vera um 650 milljónir króna. Kaupa þyrfti 1583 rúmmetra fyrir um 142 millj. króna eða 22% gjald leggst á smíðaverð skipsins vegna úreldingar- reglnanna. Isfisktogari Skip byggt árið 1972 í Noregi fyrir íslendinga. Upphafleg aðalmál: Mesta lengd 46,55 m Breidd 9,50 m Dýpt ab abalþilfari 4,35 m Þetta skip mælist í rúmmetrum um 1682 m3. Það skip kemur með að ÆGIR 25

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.