Ægir - 01.09.1998, Page 28
■ Norðurkantur - Grfmsey
Norðurkantur - Héraðsdjúp
Þyngdarmcelingar úthafsrœkju í stofnmœlingum Hafrannsóknarstofhunarinnar.
Þunglega horfir í úthafsrækjunni:
Rannsóknir sýna mun lakari
nýliðun en síðustu ár
Stofnmœling Hafrannsóknarstofn-
unarinnar á títhafsrœkju fyrir
norðan og austan land nú undir
haustið sýnir að rœkjustofninum hef-
ur hrakað mjög á undanfómum
tveimur árum. Vísitala stofnstærðar
er aðeiits helnúngur þess seni hún var
í mœlingum árið 1996 og segir það
nokkiið um breytiiiguna sem orðin er.
Miðað við síðasta ár var vísitala
stofnstærðar 30% lægri og varð lækk-
un á öllum svæðum, nema Eyjafjarð-
arál og við Kolbeinsey. Á þessum
svæðum hækkaði vísitalan milli ára.
Mæsta lækkunin varð hins vegar í
Skagafjarðardjúpi, við Grímsey, á
Sléttugrunni og í Langanesdjúpi. Vísi-
tala á Sporðagrunni var einnig lág en
svipuð og í fyrra.
Hafrannsóknarstofnunin metur það
svo að meðalstærð rækju hafi fallið
dálítið þegar á heildina sé litið í mæl-
ingunum. Þetta eigi þó ekki við um
svæðin við Kolbeinsey og Grímsey.
Frumvinnsla gagna úr leiðangrin-
um, sem farinn var á hafrannsóknar-
skipinu Dröfn, sýnir að nýliðun rækju
árið 1998 er mun lakari en undan-
gengið ár og er það talið stafa að af-
ráni þorsks en þorskgegnd á rækju-
miðunum hefur verið mikil síðan
1996 og þó einkum í fyrra. í rann-
sóknarleiðangrinum í ár varð samt
sem áður minna vart við þorsk en í
fyrra.
Sem kunnugt er gaf Hafrannsóknar-
stofnunnin út áætlanir í maí og ráð-
gjöf um veiðar á nýhöfnu fiskveiðiári
og þykja niðurstöður mælinganna nú
ekki gefa tilefni til að breyta forsend-
um þeirrar ráðgjafar.
28 ÆGIR