Ægir - 01.02.1999, Page 10
^em formaður sjávaríitvegsnefndar
lJ AIj>ingis gegriir Kristinn H.
Gunnarsson, alþingismaður af
Vestfjörðum, einu af áhrifamestu
valdaembœttum í mótun sjávar-
útvegsstefnunnar á íslandi. Hann
segir nýgenginn kvótadóm ekki hafa
gefið tilefni tii að henda öllu
fiskveiðistjórnunarkerfinu upp í loft
og stokka spilin upp á nýtt. Á hhm
bóginn segist hanti þess fullviss að
kvótadómsmálið hafi verið fyrsta
skrefið í ferli sem muni leiða tii
markvissra breytinga íþá átt að meiri
sáttgeti ríkt um stjórnun
fiskveiðanna við íslandsstrendur.
Kristinn segir að nú, þegar augljóst er
að breytingar verða í œðsta embœtti
sjávarútvegsráðuneytisins, hljóti
Vestfirðingar að gera tilkall til þess að
þingmaður þess gamalgróna
útgerðarkjördœmis taki við stjóm
sjávarútvegsmálanna. Það segir
Kristinn að geti orðið farsœlt fyrir
þjóðina í heild - og hann er
reiðubúinn að taka starfið að sér.
Umrót vegna fiskveiðistjórnarkerfis-
ins hefur í gegnum árin verið mikið á
Vestfjörðum og Kristinn viðurkennir
að vísast beri Vestfirðingar sjálfir
nokkra ábyrgð á þeirri hnignun sem
orðið hefur í sjávarútveginum í fjórð-
ungnum á undanförnum árum.
„Vestfirsku útgerðarfyrirtækin
veiddu fyrst og fremst þorsk á árum
áður og þegar niðurskurðurinn kom í
bolfiskheimildum þá varð hann nær
eingöngu í þorski. Það kom auðvitað
harðast niður á Vestfjörðum - það seg-
10 ÆGIR -----------------------------
ir sig sjálft. Við áttum þar af leiðandi
litla sem enga möguleika, utan
kannski þann að steypa saman fyrir-
tækjum og útgerðum til að halda eftir
nokkrum togurum. Þá hefði komið að
þeirri erfiðu spurningu hvaða staðir
áttu að lifa og hverjir ekki. Og hver
ætti þá að taka ákvörðun um hvaða
staðir ættu að lifa og hverjir ekki?"
Kristinn segir að samkvæmt nýrri
samantekt sem hann hefur fengið í
hendur hafi Vestfirðingar veitt um
18.000 tonn af þorski á öllum miðum
landsins á árinu 1997 en heildarþorsk-
veiði á Vestfjarðamiðum var á sama
tíma 45.000 tonn. Þessar tölur eiga
eingöngu við um aflamarkskerfið en
þá stendur krókakerfið eftir.
„Þetta segir okkur að meirihluti
þorskveiða á Vestfjarðamiðum er
stundaður af togurum að sunnan,
norðan og austan og það verður ekki
talið til skynsamlegrar útgerðar út frá
sjónarmiðum kostnaðar og hag-
kvæmni," segir Kristinn.
Jóhann Ólafur Halldórsson