Ægir - 01.02.1999, Blaðsíða 17
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEOI
Fjölveiðiskipið Gardar við bryggju í Noregi. Þetta skip koin við sögu á íslandi á síðasta
ári, var um nokkurra mánaða skeið í eigu Samherja hf. en kaup á því gengu til baka og
fór skipið til fyrri eigenda í Noregi. Ekki er að sjá annað aftölum um rekstur nótaskipa í
Noregi en hann hafi gengið vel á undanfómum árum.
lengd, sem veiða allt árið, var 104.200
tonn, að verðmæti 576 milljónir NKR
upp úr sjó. Á fiskveiðárinu 1997 var
hlutur þessara báta um 3% af heildar-
afla landsins en 6% af heildarverð-
mæti alls aflans.
Síðustu árin hefur heildarverðmæti
afla þessara báta minnkað, sem rekja
má til fækkunar þeirra.
í töflu á bls. 16 má sjá sundurliðun
á afkomu bátaútgerðinnar í Noregi. Af
töflunni sést að afkoman í heild hefur
heldur batnað milli ára. Skýringin er
sú að tekjur jukust en útgerðarkostn-
aður minnkaði. Meðalafli flestra bát-
anna óx milli ára og aflaverð hækkaði.
Aukning meðalafla má að miklu leyti
skýra með frjálsum veiðum á þorski og
ýsu mikinn hluta ársins 1997.
Gott hjá línubátunum
Mest batnaði afkoma báta í lengdar-
flokknum 8-8,9 m. Sé afkoman skoðuð
eftir veiðarfærum kemur í ljós að línu-
bátar frá Finnmörku og Troms koma
best út. Hins vegar versnaði afkoma
báta frá Finnmörku sem veiddu bolfisk
með öðrum veiðarfærum.
Ef borin er saman afkoma báta frá
einstökum stöðum sést að bátar frá
Troms komu best út með rekstrar-
hagnað upp á 9,2 % árið 1997 á móti
4,6 % árið áður.
Bátar frá Rogalandi komu verst út
með 7,7% tap árið 1997 en gögn um
afkomu þeirra árið áður eru ekki fyrir
hendi.
Greinin er byggð á samantekt í norska
blaðinu Fiskeritidende.
REVTiNGUR
Önýttur
karfakvóti
Karfakvóti Evrópusambandsins
á íslandsmiðum, 3.000 tonn, var
einungis að litlu leyti nýttur á
síðasta ári. Tveir þýskir togarar
veiddu einungis 460 tonn af karfa í
6 veiðiferðum. Hins vegar gaf þessi
kvóti íslendingum rétt til að veiða
30. 000 tonn af loðnu við Grænland.
Karfaveiði Evrópusambands-
þjóða við Island er háð ströngum
skilyrðum, t.d. er nákvæmlega til-
tekið hvar má veiða og aflann má
ekki frysta um borð.
Sókn Spánverja á
skipasmíðamarkaði
Norður-Evrópu
Spænska skipasmíðastöðin
Astilleros La Parilla hefur nýlega
skrifað undir samning við Riv-
erwiev Investments of Peterhead í
Skotlandi um að smíða 34 metra
langan skuttogara, sem áætlað er að
verði afhentur eigendum í
september nk. Gert er ráð fyrir að
togarinn verði gerður út til veiða á
Norðursjó og Norður-Atlantshafi.
Talsmaður stöðvarinnar sagði
einnig miklar líkur á því Irar semdu
við hana bæði um endurnýjun fisk-
veiðiflotans og nýsmíði.
AGillR 17