Ægir - 01.02.1999, Blaðsíða 32
Nýjar og sjaldséðar
fisktegundir árið 1998
|Hjöldi sjaldséðra fiska barst til
JJ Hafrannsóknastofnunar árið
1998, líkt og undanfarin ár. Lang-
flestir þessara fiska voru veiddir inn-
an 200 sjómílna markanna. Þrjár
fisktegundir áður óþekktar á íslands-
miðum veiddust innan markanna.
Þetta voru kryppuangi (Platytroctes
apus), sem er afangaœtt, en þar voru
fyrir 7 tegundir, rákungur (Sarda
sarda) af makrílaœtt en tvœr tegundir
hennar þekktust hér og bláskoltur
(Brotulotaenia crassa) af cett bláskolta
en fiskar þeirrar œttar voru áður
óþekktir hér.
Sæsteinsuga (Petromyzon marinus)
Ein Sæsteinsuga veiddist í botnvörpu
Hrafns Sveinbjarnarsonar í ágúst, und-
an Suðurströndinni og mældist hún
67 cm.
Önnur veiddist í botnvörpu Slétta-
ness ÍS í Rósagarði í lok september og
mældist hún 90 cm. Sú þriðja veiddist
í Hvalbakshallanum í október og
mældist 90 cm.
Veiðiskip var Hólmaborg SU.
Gráháfur (Galeorliinus galeus)
í júlíbyrjun veiddist 130 cm hængur í
net Sigrúnar GK , á 120-130 m dýpi 8
sjómílur suðvestur af Grindavík.
Þetta mun vera fjórði gráháfurinn
sem veiðist á íslandsmiðum. Sá fyrsti
veiddist árið 1911 undan Grindavík,
annar 1912 við Reykjavík og sá þriðji
1997 í Síðugrunnskanti.
Maríuskata (Bathyraja spinicauda)
Um miðjan apríl veiddust fimm mar-
íuskötur á línu á 732-824 m dýpi vest-
ur af Víkurál Þetta voru þrír hængar,
32 ÆGIR ----------------------------
Eftir
Gunnar Jónsson,
Jónbjörn Pálsson og Klara
Jakobsdóttir, starfsmenn
Hafrannsóhnarstofnunarinnar
Hafrannsóknir
139, 147 og 148 cm langir og tvær
hrygnur, 148 og 155 cm. Veiðiskip var
Byr VE.
Auk þess fengust tvö pétursskip
maríuskötu og komu bæði í botn-
vörpu. Það fyrra veiddist í janúar á
549-796 m dýpi sunnan Vestmanna-
eyja en hið síðara veiddist í septem-
berlok á 677 m dýpi vestan Látra-
grunns.
í júníbyrjun barst Hafrannsókna-
stofnuninni skötufóstur, sennilega úr
maríuskötu. Það kom af 695-878 m
dýpi úr utanverðu Háfadjúpi. Bæði
komu um borð í Hrafn Sveinbjarnar-
son GK.
Kryppuangi (Platytroctes apus)
Um miðjan apríl veiddist 18,5 cm
langur fiskur þessarar tegundar í flot-
vörpu Snorra Sturlusonar á 732-769 m
dýpi vestan við Reykjaneshrygg.
Annar, einnig 18,5 cm langur,
veiddist í maí í flotvörpu R.s. Bjarna
Sæmundssonar á 500-680 m dýpi
djúpt suðvestur af Öndverðarnesi.
Þetta er ný tegund á íslandsmiðum.
Hún telst til angaættar (Platytroctidae)
en af þeirri ætt þekkjast nú 8 tegundir
á íslandsmiðum. Kryppuangi hefur
áður fundist m.a. í Grænlandssundi en
einnig við V-Grænland, í Biskajaflóa,
undan Portúgal, vestan Marokkó og
víðar.
Skjótta skata (Raja (Amblyraja) hyperborea)
Nokkur pétursskip skjóttu skötu bár-
ust. f janúar veiddust tvö í botnvörpu
á 458-796 m dýpi á Sneiðinni sunnan
Vestmannaeyja. Veiðiskip var Hrafn
Sveinbjarnarson GK og í maí fengust
mörg í rækjuvörpu Múlabergs ÓF á
1061-1336 m dýpi í utanverðu Bakka-
flóadjúpi.
Náskata (Raja (Leucoraja) fullonica )
f ágúst veiddist 60-70 cm náskata í
dragnót á Sæljóni RE á 53 m dýpi í
Faxaflóa
Grænlandsnaggur (Nansenia groenlandica)
Einn Grænlandsnaggur veiddist í
ágúst í botnvörpu Hrafns Sveinbjarna-
sonar á 769-1006 m dýpi vestan Vík-
uráls.
Hvítaskata (Raja lintea)
Tvær hvítaskötur komu í botnvörpu
Hrafns Sveinbjarnarsonar í janúar og
báðar á Sneiðinni sunnan Vestmanna-
eyja.
Litli földungur (Alepisaurus brevirostris)
Tveir slíkir veiddust í í apríl í flotvörpu
Snorra Sturlusonar, annar vestan við
Reykjaneshrygg og mældist hann 102
cm en hinn á Reykjaneshrygg og var
hann 93 cm.
Stuttnefur (Hyd rolagus afftns)
f apríl veiddi Hólmatindur SU 127 cm