Ægir - 01.02.1999, Blaðsíða 31
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEOI
Framfarir og bjartsýni
r
í fiskveiðum á Irlandi
fkoma fiskveiðiflota íra battiar
stöðngt og meira fé er um leið
varið til nýsmíða fiskiskipa.
Frá síðasta sumri hefur írska stjórn-
in varið miklu fé til að styrkja fiskveið-
ar landsmanna. í haust leið veitti
Michael Woods, sjávarútvegsráðherra,
rúmum 450 milljónum íslenskra
króna til nýsmíði fiskiskipa og hálfu
ári fyrr höfðu, skv. áætlun Evrópusam-
bandsins 180 milljónir íslenskra
króna, gengið til nýsmíði 13 skipa fyr-
ir íra. Fyrir þetta fé er áætlað að smíða
alls 31 ný skip næstu tvö árin.
Auk þessa hefur verið gerð áætlun
fyrir allan fiskveiðigeirann. Þar er gert
ráð fyrir 1.000 nýjum störfum og 9
milljarða króna veltuaukningu innan
geirans. Ætlunin er að auka rannsókn-
ir á fiskistofnum sem eru utan veiði-
kvóta.
Þjóðhagslega hafa írar þannig feng-
ið vind í seglin. Aðgangur að sjóðum
Evrópubsambandsins er þeim mikil-
vægur, þó svo að nýverið hafi brúttó
þjóðarframleiðsla þeirra náð upp í
75% af meðaltali Evrópusambands-
landa á íbúa. írland er því ekki lengur
talið til hinna fátækari þjóða, sem
njóta framlags úr 1800 milljarða króna
sjóði sambandsins, sem styrkt hefur
t.d. Portúgal, Suður-Ítalíu, Grikland,
mestan hluta Spánar, Norður-írland,
yfirráðasvæði Frakka utan Frakklands
og Korsíku.
Þessar nýju aðstæður hafa gefið
ungu fólki á írlandi nýja von og nú
ríkir bjartsýni á írlandi um framtíð
fiskveiða. Mörg nýju skipanna munu
stunda úthafsveiðar.
Nýju skipin munu öll verða í 10-45
m á lengd. Einugis 3 þeirra verða und-
ir 15 metrum, 9 verða milli 15 og 25
metrar á lengd og afgangurinn 19 m
og stærri.
Brimnes BA 800
Jafnframt þökkum við þeim ánægjuleg samskiptí
við hönnum breytingannna.
Skipahönnunl (/ Sími 561 9595
FAX 561 9596 • BORGARTÚNI 29,105 REYKJAVÍK
ÆG,IR 31