Ægir - 01.02.1999, Blaðsíða 40
Umbúðahönnun, útlitshönnun skipa ogfyrirtœkja í sjávarútvegi
stór hluti verkefna Stíls áAkureyri:
Utlit skipa nýtt í
markaðslegum tilgangi
uglýsinga- og skiltagerðarfyrir-
tœkið Stíll á Akureyri hefur á
síðustu árum fengist við verkefni í
sjávarútveginum sem áður hefðu
talist til óþarfa en eru í dag beinlínis
hluti afímyndaruppbyggingu og
markaðsstarfi sjávarútvegsfyrir-
tœkja. Dcemi um Jtetta er nýlegt verk-
efni Jtar sem voru hönnuð og sain-
rœmd upplýsingaskilti við fram-
leiðsluhús Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna. Umbúðahönnun er einnig
orðin viðamikið verkefni hjá Stíl og
má segja að þau fyrirtœki sem lagt
hafa meira í hönnun umbúða hafi
uppskorið aukin viðbrögð og eftir-
spurn úti á markaðnum.
„Sviðið spannar allt milli himins og
jarðar, allt frá hönnun á umbúðum
fyrir frystitogara og frystihús yfir í
gerð kynningarefnis og ímyndarupp-
byggingar á heilum fyrirtækjum,"
segja þeir Gunnar Kr. Jónasson, aðal-
eigandi Stíls, og Hallgrímur Ingólfs-
son, hönnuður og innahúsarkitekt.
Samherji í fararbroddi
Hallgrímur segir að verkefnin á sviði
sjávarútvegsins hafi byrjað í kringum
Samherja, fyrst í hönnun umbúða og í
kjölfarið hafi fylgt gerð handbóka fyrir
skip félagsins, þar sem nákvæmlega er
sagt fyrir um hvernig ganga skulu um
skipin, hvaða lögmál gildi í vinnslusal,
á dekki, í lestum og svo framvegis.
„Þegar skipverjar fá upplýsingar á
þennan hátt þá skynja þeir strax að til-
gangurinn er að ná bestu mögulegum
gæðum í framleiðslunni. Til að ná því
Hallgrímur Ingólfsson hjá Stíl er höfund-
urinn að núverandi útliti Guðbjargar ÍS.
markmiði verða öll atriði að vera í lagi
um borð, stór sem smá. Samherji er
fyrirtæki sem selur sína framleiðslu
sjálft og besta auglýsingin eru skip fé-
lagsins og hvernig staðið er að vinnslu
um borð. Enda er það svo að kaupend-
ur afurða Samherja eru gjarnan leiddir
um flaggskipin í flota fyrirtækisins,
þegar þeir koma hingað til lands og þá
sannfærast þeir sjálfir um þá gæða-
ímynd sem fyrirtækið getur staðið
undir. Ég fullyrði að í íslenska flotan-
um er ekki að finna jafn glæsilegt skip
og frystitogarann Baldvin Þorsteinsson
og við erum sannfærðir um að sú
áhersla sem lögð var frá upphafi á
góðan umgang og stífar reglur um
borð hefur skilað þeim árangri að skip-
ið nær alltaf í toppárangri og lítur út
eins og nýtt, að utan sem innan," seg-
ir Hallgrímur.
Glæsifleytur og góðar afurðir
í umbúðahönnuninni nýtir Hallgrím-
ur sér skipin sjálf sem tengingu við
gæði og hreinleika.
„Kaupandinn, sem t.d. í tilfellum
Samherja eru fyrst og fremst veitinga-
hús og slíkir aðilar, er hrifinn af því að
sjá á öskjum af hvaða skipi varan er
komin. Ef nota á skipin á þennan hátt
í markaðslegum tilgangi þá er líka skil-
Gunnar Kr. fónasson og Hallgrímur Ingólfsson ineð stœður af öskjum fyrir frystar
sjávarafúrðir. Eins og sjá má prýða nú myndir af viðkomandi skipum hverja gerð, enda
vilja kaupendurnir vera vissir um að þeir fái alltaffisk afsama skipi.
40 Mm
/óhann ólafur HaUdórsson