Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1999, Blaðsíða 43

Ægir - 01.02.1999, Blaðsíða 43
SAMLEIÐ MEÐ i'SLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Skjámynd fyrir LineTec. Viö kerfið hefur verið þróaður skynjarabúnaður sem segir til wn hversu vel línan er beitt. Skipstjóri getur á augabragði séð eftir línulögn hve margir krókar voru beittir. Mesta hreyfingin í íslenskir skipstjórnarmenn Aflanemi frá Vaka kemur senn á markað- inn en hann hefur verið í prðfun hjá nokkrum íslenskum skipum undanfarið ár. Framleiðslan byggð upp með undirverktökum Starfsemi Vaka hf. byggist mikið upp á undirverktökum, innan fyrirtækisins eru 13 manns í störfum við stjórnun, þróunar- og markaðsmál. Tvö störf eru við stýringu, framleiðslu og lokapróf- anir en framleiðslan sjálf fer fram hjá SeineTec-kerfinu Jóhann segir að mikil hreyfingin hafi verið að undanförnu í SeineTec-kerf- inu frá Vaka en sá búnaður mælir átak, lengd og átakssögu. í gegnum kerfið er hægt að fylgjast með raun- hraða voðar í hífingu miðað við botn. Þetta hefur tekið góðan tíma í þróun en Jóhann segir vinnuna svo sannarlega að skila sér. Með hverjum nýjum notenda komi auknar upplýsingar um nota- gildi búnaðarins. „Við byrjuð- um að kynna búnaðinn á sjáv- arútvegssýningunni í Þránd- heimi í Norgegi í ágúst síðastliðnum og þar átti vel við orðatiltækið „fljótt flýgur fiski- sagan" þar sem góð traffík var á bás- inn. Nýjasta þróun okkar er aflanemi sem búinn er að vera í prófunum úti í flotanum í um eitt ár. Fyrsta fram- leiðslulotan er að fara út á markaðinn á næstu vikum og við væntum mikils af nemanum," segir Jóhann. hjálplegir „Það hefur verið gaman að vinna að þessum þróunarverkefnum sem unnin eru í nánu samstarfi við íslenska skip- stjórnendur. Þeir liggja ekki á liði sínu hvað varðar upplýsingar og nýjar hug- myndir við veiðar - og þeir eru ósparir á gagnrýnina. Það er líka mín skoðun að megin ástæða þess að við stöndum svo framarlega í greininni, ekki síst veiðunum, sé hversu framsæknir ís- lenskir sjómenn eru. Við kunnum þeim bestu þakkir og vonum að þetta verði svona áfram þar sem af nógu er að taka. undirverktökum. „Við byggjum okkur þannig upp að leita tilboða í framleiðsluna og fáum þá sem bestir eru á hverju sviði til að framleiða fyrir okkur," segir Jóhann. Hann segir að um 85% tekna Vaka hf. skapist af útflutningi. „Til að við getum náð árangri í þróunarstarfinu þurfum við að sækja á stærri markaði erlendis. Okkar megin svæði fyrir fiskveiðivörurnar eru Færeyjar, Noregur, austurströnd Kanada og síðan erum við að fara inn á markaði í Skotlandi. Markaðssvæðin ráðast af styrk- leika bátaútgerðarinnar í þessum löndurn en við höfum einnig selt til Namibíu, Chile og Nýja- Sjálands þannig að sölusvæði okkar stórt." Dótturfyrirtæki Vaka eru í Skotlandi og Bergen í Noregi. Starfssemi þeirra snýr enn sem komið er fyrst og fremst að fiskeldi. íslenskir sjómenn eiga mikinn þátt í tœkniþróuninni. SGXR 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.