Ægir - 01.02.1999, Síða 43
SAMLEIÐ MEÐ i'SLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Skjámynd fyrir LineTec. Viö kerfið hefur verið þróaður skynjarabúnaður sem segir til wn
hversu vel línan er beitt. Skipstjóri getur á augabragði séð eftir línulögn hve margir
krókar voru beittir.
Mesta hreyfingin í
íslenskir skipstjórnarmenn
Aflanemi frá Vaka kemur senn á markað-
inn en hann hefur verið í prðfun hjá
nokkrum íslenskum skipum undanfarið ár.
Framleiðslan byggð upp
með undirverktökum
Starfsemi Vaka hf. byggist mikið upp á
undirverktökum, innan fyrirtækisins
eru 13 manns í störfum við stjórnun,
þróunar- og markaðsmál. Tvö störf eru
við stýringu, framleiðslu og lokapróf-
anir en framleiðslan sjálf fer fram hjá
SeineTec-kerfinu
Jóhann segir að mikil hreyfingin hafi
verið að undanförnu í SeineTec-kerf-
inu frá Vaka en sá búnaður mælir
átak, lengd og átakssögu. í gegnum
kerfið er hægt að fylgjast með raun-
hraða voðar í hífingu miðað við botn.
Þetta hefur tekið góðan tíma í þróun
en Jóhann segir vinnuna svo
sannarlega að skila sér. Með
hverjum nýjum notenda komi
auknar upplýsingar um nota-
gildi búnaðarins. „Við byrjuð-
um að kynna búnaðinn á sjáv-
arútvegssýningunni í Þránd-
heimi í Norgegi í ágúst
síðastliðnum og þar átti vel við
orðatiltækið „fljótt flýgur fiski-
sagan" þar sem góð traffík var á bás-
inn.
Nýjasta þróun okkar er aflanemi
sem búinn er að vera í prófunum úti í
flotanum í um eitt ár. Fyrsta fram-
leiðslulotan er að fara út á markaðinn
á næstu vikum og við væntum mikils
af nemanum," segir Jóhann.
hjálplegir
„Það hefur verið gaman að vinna að
þessum þróunarverkefnum sem unnin
eru í nánu samstarfi við íslenska skip-
stjórnendur. Þeir liggja ekki á liði sínu
hvað varðar upplýsingar og nýjar hug-
myndir við veiðar - og þeir eru ósparir
á gagnrýnina. Það er líka mín skoðun
að megin ástæða þess að við stöndum
svo framarlega í greininni, ekki síst
veiðunum, sé hversu framsæknir ís-
lenskir sjómenn eru. Við kunnum
þeim bestu þakkir og vonum að þetta
verði svona áfram þar sem af nógu er
að taka.
undirverktökum.
„Við byggjum okkur þannig upp að
leita tilboða í framleiðsluna og fáum
þá sem bestir eru á hverju sviði til að
framleiða fyrir okkur," segir Jóhann.
Hann segir að um 85% tekna Vaka
hf. skapist af útflutningi. „Til að við
getum náð árangri í þróunarstarfinu
þurfum við að sækja á stærri
markaði erlendis. Okkar megin
svæði fyrir fiskveiðivörurnar eru
Færeyjar, Noregur, austurströnd
Kanada og síðan erum við að
fara inn á markaði í Skotlandi.
Markaðssvæðin ráðast af styrk-
leika bátaútgerðarinnar í þessum
löndurn en við höfum einnig
selt til Namibíu, Chile og Nýja-
Sjálands þannig að sölusvæði okkar
stórt."
Dótturfyrirtæki Vaka eru í Skotlandi
og Bergen í Noregi. Starfssemi þeirra
snýr enn sem komið er fyrst og fremst
að fiskeldi.
íslenskir sjómenn eiga mikinn
þátt í tœkniþróuninni.
SGXR 43