Ægir - 01.02.1999, Side 37
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Jón Steinar Ámason og Ásgeir Sigurvins-
son, eigendur Sjólistar ehf.
Fj arskiptaþróunin
er á hraðferð
- segir Jón Steinar Árnason hjá Sjólist ehf.
f^róunin í fjarskiptum skipa er í
Jr fyrirsjáanlegri fraintíð þannig að
menn verði með tölvur iiiit borð og
geti farið að vild inn á Internetið og
notað tölvur eins og í landi. í dag er
þetta mögulegt en því fylgir œrinn
kostnaður sem mun vafalaust fara
lœkkandi, saitthliða fjölgun notenda.
Við sjáum mjög liraða uppbyggingu á
t.d. Iridium gervihnattasímkerfi og
getum reiknað með að
gervihnattasímar þyki sjálfsagðir
innan fárra ára," segir Jón Steinar
Árnason, annar eigenda Sjólistar ehf.
í Reykjavík. Fyrirtœkið stofnaði hann
á síðasta ári ásamt Ásgeiri Sigurvins-
syni, sem betur er þekktur iír knatt-
spyrnuheitninum, en báðir starfa við
fyrirtœkið þar sem meginverkefhin
snúast um sölu og þjónustu við
Skanti fjarskipta- og öryggisbúnað,
sem Sjólist er umboðsaðili fyrír.
„Fjarskiptahlutinn er stærsti þáttur-
Skanti tceki úr Scanbridge 1250 GMDSS
öryggis- og fjarskiptasamstœðunni.
inn hjá okkur í dag og mikið að gerast
á því sviði. Þar er fyrst að nefna
GMDSS öryggiskerfið sem er tilkomið
vegna lagaskyldu á öllum hafsvæðum
heims. Hér á landi var gildistöku lag-
anna um GMDSS frestað til 1. febrúar
á næsta ári en við íslendingar erum
ekkert einir um að hafa ekki uppfyllt
reglur um GMDSS. Nú í desember var
áætlað að um 5000 flutningaskip í
heiminum hafi ekki uppfyllt skyldur
sínar á þessu sviði og út frá þeirri tölu
er hægt að sjá að langt er í land í fiski-
skipaflotanum," segir Jón Steinar en
hann reiknar með að þegar líður á árið
fari eftirspurnin eftir tækjum að
aukast jafnt og þétt.
„Skanti er að bjóða línu í fjarskipta-
tækjum á sviði GMDSS þannig að
hægt er að raða einingunum saman
eftir því sem hentar best í hverju og
einu skipi. Hér við land eru skip á haf-
svæði A-2 en ætli þau að fara á haf-
svæði A-3 þurfa þau að uppfyllar meiri
kröfur um GMDSS búnað en þá getum
við uppfært búnaðinn sem er fyrir og
breytt samstæðunni yfir í A-3 kerfi.
Þetta teljum við einn af stórum kost-
unum við Skanti tækin," segir Jón
Steinar.
Sjólist á í samstarfi við Sínus um
uppsetningu á Skanti tækjum og við-
gerðarþjónustu. Að meðtöldum þeim
starfsmönnum sem vinna við
þjónustuna eru starfsmenn Sjólistar
fimm til sex talsins.
„Ég sé fyrir mér að á næstu
misserum muni verkefnin snúast um
möguleika gervihnattasímtækninnar.
Þróunin er hröð og hún verður ekki
stöðvuð," segir Jón Steinar Árnason
hjá Sjólist ehf.
AGIR 37