Ægir - 01.02.1999, Page 41
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
yrði að skipin líti vel út en það má
gera ótrúlegustu hluti fyrir útlit skipa
með hönnun og málningu að vopni,"
segir Hallgrímur.
„Staðreyndin er sú að þorskurinn
kemur frekar um borð í vel útlítandi
skip," skýtur Gunnar inn í. „Þótt að
þekktur útgerðarmaður hafi oft sagt að
menn fiski ekki út á málninguna eina
saman, þá er staðreynd að betur
virðist fiskast á glæsifleyturnar en hin
skipin."
Verk að vinna hjá
vinnslufyrirtækjunum
Þeir Hallgrímur og Gunnar eru sam-
mála um að sjávarútvegsfyrirtæki séu
að verða mun meðvitaðri um að heild-
armyndin þarf að vera í lagi og að
hægt sé að nota gott útlit skipa og
vinnsluhúsa í markaðslegum tilgangi.
í nýlegum breytingum hjá Útgerðarfé-
lagi Akureyringa var Hallgrímur með í
Dcemi wn skip sem Stíll hannaði útlit á.
Á efri myndinni er togari þýska
fyrirtcekisins MHF fyrir breytingu en eftir
breytingu á þeirri neðri.
ráðum um skipulag og útlit og hann
hefur verið fenginn til að velja efni í
innréttingar í skipum og gefa álit á
skipulagi innréttinga. Síðast en ekki
síst er svo „hönnun" á málningu skipa
og dæmi um verkefni á því sviði er
floti Samherja, Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar, nótaskipið Örn KE og fleiri
skip.
„Að okkar mati er komið að
vinnsluhúsunum að huga betur að út-
liti og hönnun. Þegar fyrirtæki eru
komin út á hlutabréfamarkað og í eign
fjöldans þá eru einfaldlega komnar
upp á borðið kröfur um að allir þættir
séu í topplagi og að viðhorf til fyrir-
tækja sé jákvætt. Þá kemur til kasta að-
ila eins og okkar. Sjávarútvegurinn er
skemmtileg grein að fást við: hún er
fjölbreytt, hugsunarhátturinn er að
breytast og metnaðurinn sífellt að
vaxa. Við ætlum þess vegna að sækja
inn á sjávarútvegsmarkaðinn."
Hjá Stíl eru fjórir starfsmenn í fullu
starfi.
tr ( T/r
itiy eiHf oy á/iöfii
ái/u/eya tiffuuningfu/ rneds/iifid
HAFNARHVOLI, TRYGGVAGÖTU, SÍMI 551 5150, FAX 561 5150
DET NORSKE VERITAS
AGIR 41