Ægir - 01.02.1999, Page 53
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Vökvakerfi
Vökvakerfið er allt rafknúið. Alls er 9
Denison vökvadælum komið fyrir á
aðalþilfari framskips og í stjórnborðs-
gangi, samtals 962 kW af rafafli. Fyrir
Triplex krana, blökk og nótaleggjara
eru fjórar dælur í stjórnborðsgangi á
aðalþilfari. Rafmótorar sem knýja dæl-
urnar eru 58 kW, 104 kW, 110 kW og
140 kW. Fyrir framan lestarþil fram-
skips eru fimm spildælur fyrir vindur.
Rafmótorar þeirra eru allar 110 kW og
mesti leyfilegur þrýstingur er 220 bör.
Dælubúnaðurinn er ræstur úr brú og
vökvakerfið er búið kælingu.
Ýmis vélkerfi
Fyrir smurolíu- og eldsneytiskerfi eru
tvær skilvindur frá Alfa Laval, tvær
loftþjöppur eru frá Sperre af gerðinni
HC277, 25 m3/klst við 30 bör.
Austurskiljan kemur frá HeliSep og
eru afköst hennar 1 m3/kist. Til að
mæla stöðu í tönkum er tankamæli-
kerfi frá Ulstein Automation með
stjórnborði fyrir dælur í brú og véla-
rúmi. Plötuvarmaskiptar frá APV eru
fyrir dieselvélar og sjódælurnar eru
tvær frá Allweiler, hvor 90 m3/klst.
Austursdæla fyrir lestar er snigildæla
frá Allweiler sem afkastar 733 1/mín.
Siglinga-
og fiskileitartæki í brú o.fl.
í brú er m.a að finna.: Seguláttavita frá
J.C. Krohn & SonNor T17, Gyro átta-
vita frá Simrad af gerðinni RGC 11 og
Simrad Ap 9 mark 3 sjálfstýringu.
Tvær Furuno ratsjár, 10 cm og 3 cm
báðar með ARPA. Leiðarrita frá Mac-
Sea. Kaijo straummæli af gerð DCG
100. Tvo sóna, báðir frá Kaijo: lágtíðni
sónar af gerðinni 228 Z og hátíðni
sónar af gerðinni 1828. Tvo dýptar-
mæla, Kaijo KMC 110 og Simrad EQ
55. Scanmar komplett kerfi. Navtex
móttakara JRC og GPS af gerð GP 30
frá Shipmate ásamt DGPS frá Leica.
Frá Sailor eru SSB talstöð, VHF tal-
stöðvar 2048, GMDSS VHF og In-
marsat C Storno símar og kallkerfið
frá Vingtar. Björgunarbúnaður er m.a:
tveir 16 manna Viking gúmmíbátar,
slöngubátur með utanborðsvél, bjarg-
hringir, radarsvarar, neyðarbaujur,
C02 slökkvikerfi fyrir vélarúm o.fl.,
allt í samræmi við kröfur SI og DNV.
Tæknideild Fiskifélagsins þakkar öll-
um sem veittu aöstoö og upplýsingar viö
gerð skipalýsingarinnar, einkum Ágústi
Símonarsyni, Sturlaugi Sturlaugssyni og
starfsmönnum Siglingastofnunar.
ÁGIR 53