Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Blaðsíða 5
I. Stjórn háskólans.
Rektor háskólans, kjörinn fyrir þetta háskólaár á almenn-
um kennarafundi 17. júní 1928, var prófessor, dr. phil.
Agúst H. Bjarnason.
Varaforseti háskólaráðs var kjörinn prófessor Guðm.
Hannesson, en ritari próf. theol. Magnús Jónsson.
Deildarforsetar voru þessir:
Prófessor Magnús Jónsson í guðfræðisdeild,
—»— Guðm. Hannesson í læknadeild,
—Einar Arnórsson í lagadeild og
—»— dr. phil. Sigurður Nordal í heimspekisdeild.
Áttu þessir deildarforsetar sæti í háskólaráði undir forsæti
rektors.
II. Skrásetning stúdenta.
Skrásetning nýrra háskólaborgara fór fram þriðjudaginn
2. október, kl. 1 e. hád., að viðstöddum kennurum háskól-
ans og stúdentum og ýmsum fleirum. Stóð rektor fyrir at-
höfninni og hélt ræðu þá, sem hér fer á eftir:
Háttvirtu samkennarar og stúdentar!
Nú, þegar vér erum saman komnir enn á ný til þess að
hefja nýtt háskólaár, finnst mér ástæða til að staldra við
ofurlitið og athuga ýmislegt, sem lýtur að málum háskólans
út á við og inn á við, stjórn hans og rekstri.