Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Blaðsíða 27
25
náms, án þess að þeir þyrftu að greiða venjulegt kennslu-
gjald, gegn því, að stúdentum frá Leeds væru veitt hér sams-
konar hlunnindi. Rektor var falið að taka boði þessu fyrir
háskólans hönd.
Sfofnun námsskeiða. Á fundi 21. nóv. var samþykkt að
skjóta því til álits lagadeildar og heimspekisdeildar, hvort
fært mundi að setja á fót verzlunarnámsskeið innan laga-
deildar og kennaranámsskeið innan heimspekisdeildar eða í
sambandi við þessar deildir. Deildirnar töldu ýms tormerki
á þessu, meðan ekki væri sýnt, hvort fjárveitingarvaldið
vildi veita fé til stofnunar og viðhalds slíkum námsskeiðum.
(Sbr. að öðru leyti ræðu rektors hér að framan).
Kennsla í lyfjafræði. Á fundi 6. desbr. var lagt fram
bréf frá landlækni, dags. 6. nóv. f. á., þar sem hann fer
fram á umsögn háskólaráðs um erindi lyfjafræðinema um
kennslu í lyfjafræði. Með því fylgdi og bréf lyfjafræðinem-
anna, dags. 11. okt. Forseti læknadeildar skýrði frá áliti
deildarinnar á þessu máli. Háskólaráðið féllst á tillögu lækna-
deildar, að lyfjafræðinemar taki fyrra hluta lyfjafræðiprófs
hér, en leitað verði samninga við erlenda lyfjafræðiskóla
um það, að þeir taki þetta próf gilt sem fyrri hluta próf
og veiti nemendum héðan fullnaðarfræðslu í lyfjafræði,
þangað til hér verði komið á fullnaðarfræðslu í þeirri grein,
Háskólaráðið er og sammála læknadeild um það, að var-
hugavert sé að leyfa öðrum að byrja á lyfjafræðinámi en
þeim, sem lokið hafa stúdentsprófi.
Rannsóknarstofa í þágu atvinnuveganna. Þann 27.
ágúst 1929 bárust háskólanum tvær fyrirspurnir frá forsætis-
ráðherra svohljóðandi:
»VilI háskólinn (læknadeildin) fá rannsóknarstofuna í
þarfir atvinnuveganna í samband við sig?«
»Vill háskólinn (læknadeildin) í hinni væntanlegu reglu-
gjörð, sem um þetta yrði sett af atvinnumálaráðherra i sam-
4