Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Blaðsíða 42
40
5. Æfingar í meinvefjajrœði, með eldri stúdentum. Enn-
fremur æfingar í krufningum, þegar verkefni var fyrir
hendi.
Hver stúdent var látinn taka þátt í daglegum störfum
i rannsóknarstofu háskólans í mánaðar tíma, áður en
hann gekk undir miðhlutapróf.
6. Réttarlœknisfrœði eina stund í viku með eiztu stúdent-
unum.
Aukakennari Sœm. Bfarnhéðinsson prófessor.
1. Fór með viðtali og yíirheyrslu yfir lyfjafrœði, 3 stundir
í viku bæði missirin. Við kennsluna var stuðzt við
Poulssons Pharmakologie.
2. Hafði æfingar i Laugarnesspítala í að þekkja holdsveiki,
1 stund í viku vormisserið með eldri nemendum.
Aukakennari Jón Hj. Sigurðsson héraðslæknir.
1. Fór með yfirheyrslu og viðtali yíir lyflœknisfrœði 4
stundir í viku með elztu nemendum. Von Mehring:
Lehrbuch der inneren Medizin lögð til grundvallar við
kennsluna.
2. Sjúkravitjun 3 stundir í viku með elztu nemendum í
Farsóttahúsi Reykjavíkur, Landakotsspítala og heima.
3. Elztu nemendur látnir skrifa sjúkdómslýsingar yfir
sjúklinga í Farsóttahúsinu.
4. Fór yfir grundvallaratriði í sjúklinga-rannsóknaraðferðum
með yngri nemendum 1 stund i viku. Aðferðir sýndar
verklega, er því varð við komið. Seifert og Muller:
Taschenbuch der Krankuntersuchungsmethoden notuð.
Aukakennari Kjartan Ólafsson augnlæknir.
1. Fór yfir augnsjúkdómafrœði 1 stund í viku bæði miss-
erin með eldri nemendum. Curt Adam: Taschenbuch
der Augenheilkunde var notuð við kennsluna.
2. Hafði æfingar með eldri nemendum í aðgreining og
meðferð augnsjúkdóma 1 stund í viku bæði misserin.