Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Blaðsíða 64
62
viðsvegar urn lönd, fær frá þeim skýrslur og leiðbeinir siðan íslenzk-
um stúdentum, sem utan ætla að fara. Pá hefur hún og útvegað stú-
dentum hér í bæ kennslu og greitt fyrir þeim á annan hátt; einnig
hafa erlendir stúdentar, er hingað hafa komið, notið aðstoðar hennar
og fyrirgreiðslu. Spjaldskrá yfir alla núlifandi stúdenta íslenzka er og
í smíðum. Skrifstofan hefur og veitt öðrum en stúdentum upplýsingar
um nám erlendis. Fjárhagurinn hefur eigi verið góður. Forstöðumenn
hafa að vísu fengið greiddan útlagðan kostnað, en póknun fyrii starf
sitt hafa þeir enga fengið; hefur það þó verið töluvert og farið vax-
andi. En stúdentaráð hefur engin fjárráð haft og því ekki átt þess
kost að búa svo við starfsmenn sína sem vert væri og nauðsyn ber
til, enda var annar kostnaður af starfsemi þess þegar orðinn svo
mikill, að til nýrra ráða varð að taka upplýsingaskrifstofunni til efl-
ingar. Varð það því úr, að stúdentaráð skrifaði nokkrum félögum og
stofnunum hér í bæ, sem ætla mátti, að áhuga hefðu fyrir slíkum
málum, og mæltist til þess, að þau legðu fé fram til skrifstofunnar
gegn því, að hún útvegaði þeim upplýsingar um nám o. fl. Undirtektir
voru góðar að því leyti, að flestir viðurkenndu nytsemi stofunnar og
gott starf, en einungis fáir sáu sér fært að lofa fé; þó munu 3—4 félög
liafa lofað að leggja fram a. m. k. eitt hundrað krónur hvert. Með
því að þetta þótti eigi fullnægjandi, sótti ráðið um styrk til Alþingis;
sá það nokkra nauðsyn málsins og veitti stofunni þúsund króna styrk
á fjárlögum fyrir 1930. Er því þessum málum komið í sæmilegt horf í bili.
Húsnæði hafði skrifstofan á Mensa academica, en er hún var lögð
niður, fekk skrifstofan inni í einni kennslustofu Háskólans í sumar,
en nú hefur hún herbergi í Kirkjutorgi 4.
Stúdentaskifti.
Stúdentaráðið hefur 750 króna styrk til stúdentaskiíta og fengu þrir
stúdentar styrk af því fé: Ivristján Guðlaugsson stud. jur., Gisli Guð-
mundsson stud. mag. og María Hallgrímsdóttir stud. med.
í stúdentaskiftanefnd voru Lárus Sigurbjörnsson, Júlíus Sigurjóns-
son og Bergsveinn Ólafsson.
Samkvæmt tilmælum Háskólaráðs kaus stúdentaráðið einn mann i
nefnd til þess að annast um stúdentaskifti við Þýzkaland. Bergsveinn
Ólafsson var kosinn.
Mensa academica.
Stjórn hcnnar skipuðu: Jón Jónsson gjaldkeri, Július Sigurjónsson
og Karl Sig. Jónasson meðstjórnendur. Július og Jón voru kosnir af
stúdentaráði, en Iíarl af mötunautum. Iionráð Kristjánsson og Torfi
Jóhannsson voru endurskoðendur.