Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Side 13

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Side 13
11 í guðfræðideild 4 á ári eða 16 alls - læknadeild . 4 - — — 20 — - lagadeild ... 3 - — — 15 — - isl. fræðum . 1 þriðja hv. ár 2 — Samtals 12 á ári eða 53 alls En i fyrrahaust voru innritaðir: í guðfræðideild 4 og þá alls í deildinni 29 nem. - læknadeild . 13 - 64 — - lagadeild . . . 12 - 41 — - ísl. fræðum . 5 - . _ . _ 12 — - heimspeki . . 4 - . _ . _ 4 — Innritaðir 38, en alls i háskólanum 150nemendur. Er þá sýnt með þessu, að i háskólanum voru í fyrrahaust allt að því þrisvar sinnum íleiri nemendur en þörf þjóð- félagsins krefur og í raun réttri ættu þar að vera, á meðan hann hefir ekki fleiri námsgreinar eða fjölþættara nám upp á að bjóða en nú. Athugi menn sérstaklega fjölsóttustu deildirnar, læknadeild og lagadeild, þá myndu þeir nemendur, sem nú eru í lækna- deild, nægja landinu í 16 ár, þótt enginn nýr nemandi bætt- ist við; og með nemendum þeim, sem nú eru í lagadeild, mætti þvi nær íviskipa i öll sýslumanns- og bæjarfógeta- embætti landsins. Hér er þvi sýnilegur voðí á ferðum fyrir nemendurna sjálfa, sá, að þeir um fjölmörg ár fái Iítið eða ekkert að gera að afloknu prófl. Verður þvi á einhvern hátt að reyna að draga úr aðsókninni að embættadeildunum, ekki einungis þjóðfélagsins, heldur nemendanna sjálfra vegna. Til þess að draga úr stúdentaviðkomunni og þar með að- sókninni að embættadeildum háskólans treysti nefndin sér ekki til — kostnaðarins og annara hluta vegna — að mæla með þvi, að stofnaðir yrðu 2 sex ára samfelldir lærðir skólar, annar i Reykjavik, en hinn á Akureyri, því að þetta mundi fremur auka tölu stúdenta en minnka, og af því mundi þegar leiða stofnun tveggja gagnfræðaskóla, annars á Suður- landi, en hins á Norðurlandi. Hún stakk því upp á, bæði til þess að forðast aukinn kostnað og bæta stúdents-

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.