Árbók Háskóla Íslands

Árgangur

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Síða 19

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Síða 19
17 þetta að hafa mikinn aukakostnað i för með sér, þar sem kennarinn í heimsspeki ætti að geta tekið að sér að minnsta kosti einhvern hluta uppeldisfræðinnar, en fá mætti einhvern efnilegan, ungan mann, er gengið hefði á kennaraháskóla erlendis, til þess að kenna og sýna nýjustu kennsluaðferðir í hverri grein. En stúdentar með slíkri framhaldsmenntun ættu þá líka að teljast þeim mun fremri kennaraskólamönnum, sem þeir yfirleitt hefðu hlotið betri og víðtækari menntun. Þá vil ég að lokum drepa nokkrum orðum á kjör stúd- enta hér við háskólann. Kjör stúdenta hér við háskólann eru yfirleitt svo bág, að vér verðum að reyna að gera allt, sem vér getum, til þess að bæta þau. Líkt og endrarnær fór háskólaráðið fram á, að námsstyrk- urinn yrði hækkaður, og hækkaði þingið hann fyrir kom- andi ár um 2.000 kr., úr 13.000 kr. í 15.000 kr. Námsstyrk fengu 40 af 150 stúdentum árið sem leið, þar af 20 hærri slyrkinn, 400 kr. á mann, og aðrir 20 lægri styrkinn, 250 kr. á mann. Húsaleigustyrk fengu 64 nemendur alls, frá 53 kr. á mann upp í 110 kr. og 200 kr., en hæstan húsaleigustyrk fékk 1 nemandi, 350 kr. Engir þessara 64 nemenda fengu náms- styrk. Samkvæmt þessu hafa þá 46 nemendur háskólans engan styrk fengið, og aðeins tæpur þriðjungur styrk, sem um munar. En hvernig kemst nú efnalaus og umkomulaus stúdent af, jafnvel þótt hann fái slíka styrki sem þessa? Gerum ráð fyrir, að stúdent með mestu sparsemi geti komizt af hér í Reykjavík með 175 kr. á mánuði til fæðis, húsnæðis, klæða og skæða, þjónustu og bóka eða um 1600 kr. yfir háskóla- árið, sem er 9 mánuðir. Segjum, að hann geti, ef vel gengur, unnið sér inn 600 kr. með sumarvinnu sinni, og að hann, ef hann er duglegur til náms, fái hæsta styrk, 400 kr., þá vantar hann þó enn 600 kr. til þess að geta komizt af. Ein- 3

x

Árbók Háskóla Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.