Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Side 23

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Side 23
21 Húsnæðisvandræði háskólans. Á fundi 21. nóvbr. var rætt um húsnæðisvandræði háskólans. Telur háskólaráðið húsnæði það, sem háskólinn á við að búa, allskostar óvið- unandi. Það vill þvi, að lóð handa fyrirhugaðri háskólabygg- ingu verði ákveðin svo fljótt, sem unnt er, uppdráttur gerður og húsið reist, svo fljótt sem kostur er á. Bendir háskóla- ráðið á þann möguleika, að lögð yrði til hliðar árleg fjárhæð til háskólabyggingar, ef fjárveitingarvaldinu þætti ekki fært að reisa hana með öðrum hætti. En þangað til bæti stjórn og þing úr brýnustu þörfum með því að sjá háskólanum fyrir bráðabirgða húsnæði. Út af þessu barst háskólaráðinu 8. jan. 1929 svohljóðandi bréf frá dóms- og kennslumálaráðherra: Út af fornu og nýju umtali um væntanlega háskólabygg- ingu i Reykjavík þykir rétt að vikja að nokkrum meginat- riðum bréflega til háskólaráðsins. Engin átylla er til þess, að Þingvallanefndin hafi rætt um eða ákvarðað á fundum sínum fram að þessu, að lög um háskólabyggingu yrðu samþykkt á Alþingi á Þingvöllum 1930. Ekki hefir stjórnin heldur, enn sem komið er, gert neitt viðvíkjandi málinu á þeim grundvelli. Hinsvegar mun það full-ljóst starfsmönnum háskólans og þingmönnum, að sambýli háskólans og Alþingis í þinghúsinu er mjög ófullnægjandi fyrir báða aðila. Alþingi hlýtur að óska þess, að tvibýli þetta hætti svo fljótt sem því verður viðkomið, og svo mun háskólinn segja fyrir sitt leyti. Það verður óhjákvæmilegt að reisa háskólanum nýtt hús við hans hæfi. Það er aðeins fjármálahliðin, sem tefur málið. Nú myndi ráðlegt að hefja sem allra fyrst hið óbjákvæmilega undirbúningsstarf, sem verður að inna af hendi, áður en hægt er að ætlast til, að borgarar landsins samþykki að taka á herðar sér þær auknu byrðar, sem leiða af háskólabyggingunni. F}'rsti þáttur í lausn málsins er að tryggja sér lóð fyrir háskólann frá Reykjavikurbæ. Sú lóð er til, frá Skólavörðutorgi og stúdentagarðinum, suður að Hringbraut. Það er nauðsynlegt,

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.