Árbók Háskóla Íslands

Árgangur

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Síða 24

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Síða 24
22 að Reykjavíkurbær leggi þessa lóð fram endurgjaldslaust og jafnframt því hita úr Laugunum í væntanlegar byggingar, eftir þvi sem framast er unnt. Opinberar byggingar verða i þeim efnum að sitja fyrir húsum einstakra manna. Myndi áreiðanlega flýta fyrir málinu, ef háskólaráðið sneri sér til Reykjavíkurbæjar og óskaði eftir lóð og heitu vatni úr Laug- unum, sem heiðursgjöf til háskólans frá Reykjavikurbæ. Lóð háskólans þarf að vera mjög stór, ef unnt væri ekki minni en 2—3 dagsláttur, til að gera ráð fyrir nægilegu olnbogarúmi um ókomnar aldir. t*ar sem Akureyri hefir keypt handa Gagnfræðaskólanum þar 10 dagsláttur af landi, sýnist ekki ofmikið þótt Reykjavíkurbær færi þessa fórn. í öðru lagi væri mjög æskilegt, að hinar einstöku deildir háskólans lýstu þörfum sínum að því er snertir húsrúm, og að háskólaráðið lýsti sameiginlegum þörfum og sennilegum viðbótum, er gera yrði ráð fyrir i náinni framtíð. Þessar til- lögur væri æskilegt að fá sendar stjórnarráðinu. Þá kæmi þriðji þáttur, að láta teikna hinn nýja háskóla og gera áætlun um skipulag hans. Er það hinn mesti vandi og yrði áður en fastar ákvarðanir yrðu teknar að rannsaka hinar nýrri háskólabyggingar og reynslu annara þjóða. Þenn- an undirbúning yrði að gera sameiginlega af háskólaráðinu, eða nefnd, sem háskólinn velur, og landsstjórninni og sér- fræðingum þeim, sem hún hefir á að skipa. Fjórða stigið er að fá fé til bygginga og aukins reksturs. Háskólinn ræður yfir nokkru fé í þessu skyni, en að sjálf- sögðu yrði meginhluti fjárins að koma með atbeina Alþingis. Að lítt athuguðu máli má gera ráð fyrir, að heppilegast yrði að hafa meginbyggingu háskólans við Skólavörðutorg, ekki sérlega stóra, en ætlast til, að minni byggingar, svo sem bókasafn, rannsóknarstofur o. s. frv. yrðu sjálfstæðar á jöðr- um hinnar víðlendu lóðar, en grænir vellir á milli húsa. Mætti vel fara svo, að byrjað yrði á einhverjum af þessum minni byggingum, t. d. bókasafninu. Jónas Jónsson. Til háskóla íslands.

x

Árbók Háskóla Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.