Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Side 30

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Side 30
28 Árbókin og sérprentin. Á fundi 2. apríl benti rektor á samþykkt háskólaráðs 18. desbr. 1923, þar sem ályktað var, að »framvegis eignist Háskólinn sjálfur sérprent af fylgiritum árbókar, ef þau verða tekin, að undanteknum þeim, sem venja er, að höf. fái sjálfuroc. Út af þessu var brugðið með samþykkt fyrra háskólaráðs 29. sept. 1928 (sbr. Árbók 1927 —28, bls. 15), þar sem »PrestaféIagi Islandscc var heimilað að taka ótiltekinn fjölda sérprenta af fylgiriti þess árs. Vegna þessa tekur háskólaráðið það fram, að það ætlast til þess, að Háskólinn gefi framvegis sjálfur út sérprentanir af fylgiritum háskólaárbókar og hafi ágóðann af því. Ennfremur telur há- skólaráðið nauðsynlegt að fela ötulum manni sölu árbókar- innar og fylgiritanna gegn hæfilegri þóknun. Utanfararstyrkur kandidata. Á fundi 28. sept. 1928 skýrði varaforseti háskólaráðs, próf. Guðm. Hannesson frá þvi, að kært hefði verið yfir því fyrir sér, hvernig cand. jur., hæsta- réttarmálaflutningsmaður Stefán Jóh. Stefánsson hefði varið utanfararstyrk sínum. Var samþykkt að fela rektor að leita upplýsinga um notkun utanfararstyrkja. Á fundi 12. okt. las rektor bréf, sem hann hafði ritað cand. jur. Stefáni Jóh. Stefánssyni, mag. art. Úorkeli Jóhannessyni o. fl. með fyrirspurnum um það, hvernig þeir hefðu varið utanfararstyrk sinum. Lesin voru og svör þeirra. Hefir Stefán Jóh. Stefánsson dvalið 2 mánuði erlendis, en Þorkell 3 mánuð. Út af þessu var samþykkt svohljóðandi tillaga: Með skírskotun til ályktunar háskólaráðs 10. maí 1924, sbr. fundargerð 22. jan. 1926, sér háskólaráðið sér ekki fært að greiða kandídötunum Stefáni Jóh. Stefánssyni og Þorkeli Jóhannessyni síðari helming styrks þess, er þeir fengu af utanfararfé kandidata úr Sáttmálasjóði, fyr en þeir hafa full- nægt þeim skilyröum, er sett eru í áðurnefndum fundar- gerðum. Sþ. með öllum atkv. Til þess að koma í veg fyrir frekari vanbrúkun styrksins, samdi háskólaráðið upp ákvæði þau um utanfararstyrk kandídata, er áður hafa verið sett. Var rektor falið að láta

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.