Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Page 31

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Page 31
29 prenta reglur þessar í Árbók háskólans (sbr. Árbók 1927— 28, bls. 58, flgskj. II) og láta framvegis afhenda þær sér- prentaðar hverjum þeim, sem kandidatastyrk fær. Ritari háskólans. Á fundi 8. febr. 1929 skýrði rektor frá, að hann hefði talað við Pétur Sigurðsson bókavörð og boðið honum ritara- og dyravarðarstöðuna við háskólann, eins og háskólaráðið hafði ákveðið. Tók hann þessu máli líklega og sagðist mundu þiggja stöðu þessa, en gæti þó ekki tekið við henni strax, af því að hann ætti ýms verk óunnin við Landsbókasafnið. Þó kvaðst hann mundu geta aðstoðað nú- verandi ritara í viðlögum og sett sig jafnframt inn i störfin. Ritaraíbúðin. Á fundi 8. marz skýrði rektor frá ástandi ibúðarinnar og því, að Pétur Sigurðsson bókavörður áliti hana alls ekki nothæfa. Ennfremur skýrði hann frá viðtali sinu við dómsmálaráðherra og hefði hann lofað, að láta húsmeistara ríkisins athuga íbúðina. Á fundi 3. maí tilkynnti rektor, að húsmeistari rikisins hefði athugað ritaraíbúðina og gefið umsögn um hana með bréfi dags. 30. apríl. Áætlar hann, að kosta muni um 7000 kr. að gera íbúðina sæmilega. Var samþykkt að senda dóms- málaráðuneytinu þessa umsögn með meðmælum um, að þessi viðgerð verði framkvæmd. Á fundi 30. ágúst tilkynnti rektor, að samþykki stjórnar- ráðs hefði fengizt til þess að gera sæmilega við ritaraibúð- ina og væri húsmeistara ríkisins falið að sjá um viðgerðina. Rannsóknarstofa háskólans. Á fundi 21. maí lagði rektor fram bréf, dags. 18. s. m., sem hann hafði ritað for- stöðumanni Rannsóknarstofu háskólans, dócent Níels P. Dungal. Er þar óskað eftir reikningsskilum um rekstur stof- unnar árin 1923—28. Sömuleiðis lagði hann fram svarbréf frá Niels P. Dungal, dags. 20. s. m., þar sem skýrt er frá tekjum og gjöldum stofunnar árin 1927 og 28, svo og frá tekjum þeim, sem forstöðumaðurinn hefir haft þessi ár, en

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.