Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Page 34

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Page 34
32 Fimmti alþjóðafundur um samanburðar-trúarbragða- sögu. Ráðuneytið sendi boð frá sænsku stjórninni um að senda fulltrúa á 5. alþjóðaþing um samanburðartrúfræði, er halda skal í Lundi dagana 27.-29. ág. Var guðfræðideild falið að tilnefna mann til þessarar farar og tilnefndi hún próf. theol. Magnús Jónsson. Sá hann sér þó ekki fært að fara, þegar til kom. IV. Kennarar háskólans. 1 guðfræðisdeild: Prófessor Sigurður P. Sivertsen, settur prófessor Magnús Jónsson, er veitingu fekk fyrir því embætti 23. ágúst 1929, settur dócent Ásmundur Guðmundsson, er veitt var það em- bætti 2. september þ. á., og aukakennari í grísku, aðjunkt Iíristinn Ármannsson. í læknadeild: Prófessor Guðmundur Hannesson, prófessor Guðmundur Thoroddsen, dócent Níels P. Dungal og aukakennarar: pró- fessor Sœmundur Bjarnhéðinsson, holdsveikislæknir, hjeraðs- læknir Jón Hj. Sigurðsson, Ólajur Porsteinsson, eyrna- nef- og hálslæknir, Kjartan ólafsson, augnlæknir, Trausti Ólafs- son, efnafræðingur, og Vilhelm Bernhöft tannlæknir. í lagadeild: Prófessor Einar Arnórsson, prófessor Ólajur Lárusson og prófessor Magnús Jónsson. í heimspekisdeild: Prófessor, dr. phil. Agúsl H. Bjarnason, prófessor, dr. phil Sigurður Nordal, prófessor, dr. phil. Páll Eggert Ólason og dócent, dr. phil. Alexander Jóhannesson. Störfum ritara og dyravarðar gegndi Ólafur Rósenkranz eins og áður.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.